Jobs-veldið enn risavaxið

Laurene Powell Jobs, eft­ir­lif­andi eig­in­kona Steve Jobs, stofn­anda Apple, er fjórða rík­asta kona heims sam­kvæmt lista Forbes. Eignir hennar eru metnar á 15,3 millj­arða dala, eða sem nemur um 1.700 millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur tæp­lega einni árlegri lands­fram­leiðslu Íslands á ári.

Helstu eignir frú Jobs eru bundnar í eign­ar­hlutum í Apple og Disney. Hún er stærsti ein­staki eig­andi Disney í gegnum sjóð­inn The Laurene Powell Jobs Trust en hlut­ur­inn var áður á nafni Steve Jobs. Þá situr hún í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins Ozy Media, og einnig í söfn­un­ar­sjóðum Stanford háskóla.

Jobs, sem er lög­fræð­ingur að mennt, er meðal helstu stuðn­ings­manna Hillary Clinton og hefur lagt háar fjár­hæðir til und­ir­bún­ings for­seta­fram­boðs hennar í gegnum Ready for Hillary sjóð­inn. Samtals hafa safn­ast sex millj­ónir dala í þann sjóð, eða sem nemur ríf­lega 700 millj­ónum krónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár