Samskip ásakar Samkeppniseftirlit og Sérstakan um leka

Samskip segir að það sé með öllu óásætt­an­legt að Sam­keppn­is­eft­ir­litið eða Sér­stakur sak­sókn­ari, afhendi fjöl­miðlum upp­lýs­ingar þar sem bornar eru á fyr­ir­tækið og aðra aðila alvar­legar sakir, sem „hlut­að­eig­andi ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki hafa ekki verið upp­lýstir um og hafa enga mögu­leika á að svara fyrir sig eða bera hönd fyrir höfuð sér með neinum hætti[...] gögnum hefur verið komið til fjöl­miðla um mál sem ekki er búið að ákveða hvort tekið verður til rann­sóknar, hvað þá að ákærur hafi verið gefnar út. “. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Samskip sendi frá sér rétt í þessu.

Í til­kynn­ing­unni segir einnig: „Það er væg­ast sagt und­ar­legt að vera leiksoppur í því sem virð­ist vera bar­átta rík­is­stofn­ana fyrir til­vist sinni og/eða auknum fjár­veit­ingum og ger­sam­lega óásætt­an­legt að orð­spori, mann­orði og sjálf­sögðum mann­rétt­indum sé ýtt til hliðar fyrir slíka hags­muni.“

Grunur um áralangt ólöglegt samráð


Kast­ljósið greindi frá því á þriðju­dag að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi kært ell­efu starfs­menn og stjórn­endur Samskipa og Eimskipa til emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara fyrir meint brot á sam­keppn­is­lögum. Grunur leikur á að félögin hafi stundað ólög­legt sam­ráð um ára­bil, en félögin sinna um tveimur þriðju allra farm­flutn­inga til og frá land­inu.

Kæran byggir á gögnum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hald­lagði í hús­leitum sem það fram­kvæmdi hjá fyr­ir­tækj­unum tveimur og dótt­ur­fé­lögum þeirra í sept­em­ber­mán­uði á síð­asta ári og svo aftur í sumar.

Á meðal þeirra kærðu eru Gylfi Sig­fús­son, for­stjóri Eimskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, for­stjóri Samskipa og Ásbjörn Gíslason, fram­kvæmda­stjóri hjá erlendu dótt­ur­fé­lagi Samskipa.

 

Fréttatilkynning Samskipa í heild er svohljóðandi:


„Vegna frétta síð­ustu daga um ætlað sam­ráð á flutn­inga­mark­aði vilja Samskip koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Félagið starfar af heil­indum á mark­aði þar sem ríkir virk sam­keppni. Það er skoðun okkar að skýr sam­keppn­is­lög og skil­virkt eft­ir­lit séu nauð­syn­leg til að tryggja heil­brigt atvinnu­líf.

Starf­semi Samskipa hefur ávallt grund­vall­ast á sam­keppni á öllum mörk­uðum og félagið hefur verið leið­andi í að skapa virka sam­keppni. Samskip hafa verið óhrædd við að benda eft­ir­lits­að­ilum á þegar félagið telur að keppi­nautar á mark­aði fari ekki að lögum. Ábend­ingar okkar til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafa m.a. leitt til sekt­ar­greiðslna eins af sam­keppn­is­að­ilum okkar.

Eft­ir­lits­að­ilar gegna ábyrgð­ar­miklu hlut­verki og heim­ildir þeirra til rann­sókna eru afar víð­tækar. Því er það sjálf­sögð og eðli­leg krafa að trún­aður ríki um gögn sem aflað er með jafn inn­grips­mik­illi aðgerð og hús­leit, með dóms­úr­skurði, á meðan mál eru til rann­sóknar. Sá trún­aður er ekki til staðar og gögnum hefur verið komið til fjöl­miðla um mál sem ekki er búið að ákveða hvort tekið verður til rann­sóknar, hvað þá að ákærur hafi verið gefnar út.

Það er með öllu óásætt­an­legt að stjórn­völd (Sam­keppn­is­eft­ir­litið eða Sér­stakur sak­sókn­ari) afhendi fjöl­miðlum upp­lýs­ingar þar sem bornar eru á aðila alvar­legar sakir, sem hlut­að­eig­andi ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki hafa ekki verið upp­lýstir um og hafa enga mögu­leika á að svara fyrir sig eða bera hönd fyrir höfuð sér með neinum hætti.

Það er væg­ast sagt und­ar­legt að vera leiksoppur í því sem virð­ist vera bar­átta rík­is­stofn­ana fyrir til­vist sinni og/eða auknum fjár­veit­ingum og ger­sam­lega óásætt­an­legt að orð­spori, mann­orði og sjálf­sögðum mann­rétt­indum sé ýtt til hliðar fyrir slíka hags­muni.

Hjá Sam­skipum starfa yfir 500 manns. Starfs­fólkið og fjöl­skyldur þeirra þurfa að sitja undir órök­studdum dylgjum um mál sem enn er til skoð­unar. Í gær sendi Sam­keppn­is­eft­ir­litið frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem segir að eft­ir­litið sé „ekki reiðu­búið að stað­festa þá umfjöllun sem fram kom í Kast­ljósi í gær­kvöldi. Þá skal sér­stak­lega tekið fram að rann­sókn máls­ins er ekki komin á það stig að unnt sé að slá neinu föstu um nið­ur­stöður hennar.“ Rétt er því að var­ast að fella dóm í mál­inu en bíða eftir því að nið­ur­staða liggi fyrir. Samskip hafa ekk­ert að fela og treysta því að nið­ur­staða skoð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Sérstaks sak­sókn­ara sýni það.

Við vitum að ábyrgð okkar er mikil og við erum með­vituð um þær skyldur sem við berum gagn­vart við­skipta­vinum okkar og þá um leið almenn­ingi í land­inu.

Starfs­fólk Samskipa hefur unnið ötul­lega og eftir bestu sam­visku að því að stuðla að virkri sam­keppni og auk­inni hag­sæld á Íslandi með því að bjóða við­skipta­vinum sínum hag­kvæmar lausnir í flutn­ingum og flutn­inga­tengdri þjón­ustu atvinnu­líf­inu í land­inu og sam­fé­lag­inu öllu til heilla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár