Slóvakinn Magela eini eigandi Kredia og Smálána

Mario Magela, fjár­festir frá Slóvakíu, er nú skráður eini eig­andi smá­lána­fyr­ir­tækj­anna Kredia og Smálána. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans keypti Magela félögin af Leifi Alex­ander Har­alds­syni í des­em­ber síð­ast­liðnum. Breyt­ingin á eign­ar­hald­inu var hins vegar fyrst skráð inn hjá fyr­ir­tækja­skrá 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Megela er með víð­tæka starf­semi, meðal ann­ars með smá­lán, í Tékk­landi og Slóvakíu. Þar rekur hann meðal ann­ars smá­lána­síð­una www.kredia.cz, sem byggir á íslensku fyr­ir­mynd­inni.

Keypti hlut í eiganda Inkasso


Kjarninn greindi frá því í jan­úar síð­ast­liðnum að Magela hefði átt hlut í félagi sem hét DCG ehf. Það félag var hins vegar á þeim tíma skráð að fullu í eigu Leifs Alex­and­ers Har­alds­sonar og hafði þá nýverið einnig keypt inn­heimtu­fyr­ir­tækið Inkasso, sem meðal hafði séð um inn­heimtu fyrir smá­lána­starf­semi. DCG ehf. átti á þeim tíma einnig Hópkaup, Heimkaup, SpotOn og ýmis­legt annað.

Frá því í sept­em­ber er Magela hins vegar einn skráður eig­andi Kredia og Smálána. Inkasso er enn í eigu DCG ehf., sem heitir í dag Kaptura Eign­ar­hald og Rekstur ehf. Það félag er í 100 pró­sent eigu Leifs Alex­and­ers Har­alds­sonar. Á meðal ann­arra eigna félags­ins er Heimkaup.

Önnur blokk í eigu kýpversks félags


Smá­lána­heim­ur­inn á Íslandi hefur skipst í tvær blokkir. Annars vegar eru fyr­ir­tækin Kredia og Smálán, sem eru í eigu Megela, og hins vegar eru fyr­ir­tækin Hrað­pen­ingar, 1909 og Múla. Þau þrjú síð­ast­nefndu eru öll í eigu félags á Kýpur sem heitir Jumdon Finance Ltd. For­svars­menn fyr­ir­tækj­anna á Íslandi hafa ekki viljað gefa upp hverjir end­an­legir eig­endur Jumdon Finance eru. Fjár­mála­eft­ir­litið, sem hefur eft­ir­lit með starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja, og Fyr­ir­tækja­skrá, búa ekki yfir upp­lýs­ingum um hver end­an­legur eig­andi félag­anna er. Því er staðan sú að á íslenskum neyt­enda­mark­aði eru starf­andi þrjú lána­fyr­ir­tæki sem eng­inn, utan þeirra sem stýra því, veit hver á.

Samkvæmt fyr­ir­tækja­skrá hefur ekk­ert smá­lána­fyr­ir­tæki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2013. Því liggur ekki fyrir hvernig rekstur þeirra gekk í fyrra, en hart hefur verið sótt að starf­sem­inni með hertri lög­gjöf. Rekst­ur­inn árin á undan gekk hins vegar prýði­lega og hagn­aður hljóp á tugum millj­óna króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár