Sviðin jörð Mexíkó

Áætlaður hagn­aður eit­ur­lyfja­hringja í Mexíkó af sölu eit­ur­lyfja í Banda­ríkj­unum nemur allt að 30 millj­örðum banda­ríkja­dala á ári. Það er um 2-3% af vergri lands­fram­leiðslu Mexíkó. Til sam­an­burðar er velta íslenska sjáv­ar­út­vegs­ins rúm­lega 13 millj­arðar banda­ríkja­dala eða um 12% af vergri lands­fram­leiðslu Íslands.

Á fyrri hluta nítj­ándu aldar áskildu Banda­ríkin sér einka­rétt til íhlut­unar í Mið- og Suður-Ameríku. Þetta til­von­andi stór­veldi var með þessu að berja í borðið og segja gömlu evr­ópsku nýlendu­veld­unum, sér­stak­lega Spán, að halda sig á mott­unni. Þessi stefna er kölluð Monroe-kenni­setn­ingin og hefur verið horn­steinn banda­rískrar utan­rík­is­stefnu síðan.

Spænska heims­veldið hopaði en til þess að reka það á brott þurfti frels­is­hetjur á borð við Simón Bolívar. Mið-Ameríka var, og er enn, van­þróað svæði og efna­hagur land­anna byggð­ist mikið til á land­bún­aði eða útflutn­ingi á nátt­úru­auð­lindum. Óstöð­ug­leiki, hall­ar­bylt­ingar og borg­ara­stríð hafa ein­kennt sögu Mið- og Suður-Ameríku á tutt­ug­ustu öld­inni. Rétt­ar­ríkið hefur ekki náð að festa sig í sessi. Glæpir og spill­ing eru víða algeng, meira að segja í dóms­kerf­inu, á meðal lög­reglu og ann­arra opin­berra emb­ætt­is­manna.

Bakgarður Bandaríkjanna


Á tíma kalda stríðs­ins var annar horn­steinn banda­rískrar utan­rík­i­s­tefnu að stöðva útbreiðslu komm­ún­isma, nefnd Truman-kenni­setn­ingin. Kúba Kastrós var Banda­ríkja­mönnum þyrnir í augun og Banda­ríkja­menn studdu hverja þá ribb­alda sem ljóst var að myndu stökkva vinstrisinn­uðum bar­áttu­mönnum á flótta í löndum Mið-Ameríku. Fleiri en einum banda­rískum for­seta eru eignuð ummælin eft­ir­far­andi um fleiri en einn ein­ræð­is­herra á svæð­inu.
„He may be a son of a bitch, but he's our son of a bitch”

Oft hefur því verið haldið fram að Roosevelt hafi sagt þetta um Anastasio Somoza García (1896-1956) sem var ein­valdur í Ník­aragva á árunum 1936 til 1956. Eftir að Ník­arag­vabúar höfðu flæmt son hans og arf­taka Anastasio Somoza Debayle (1925-1980) frá völdum 1979 studdu Banda­ríkja­menn skæru­liða gegn hinni svoköll­uðu Sand­inista-rík­is­stjórn í Ník­aragva. Íhlutun Banda­ríkj­anna urðu að hneyksl­is­máli í fjöl­miðlum þar vestra, Íran-Kontra-hneyksl­inu svo­kall­aða. Alþjóða­dóm­stól­inn dæmdi Banda­ríkja­stjórn seka um ólög­lega íhlutun í inn­an­rík­is­málum Ník­aragva árið 1986 en Banda­ríkin virtu dóm­inn að vettugi. Ník­aragva er í dag örugg­asta og frið­samasta land Mið-Ameríku.

[caption id="attachment_9582" align="alignnone" width="1024"] Rios Montt fyrr­ver­andi hers­höfð­ingi og banda­maður Banda­ríkj­anna á níunda ára­tugnum var dreg­inn fyrir dóm­stól árið 2012.[/caption]

Á hápunkti borg­ara­stríðs­ins í Gvatemala sem geys­aði í 36 ár, nánar til­tekið 4. des­em­ber 1982, lýsti Ronald Reagan yfir ein­dregnum stuðn­ingi við for­seta lands­ins, Efraín Ríos Montt:

„Pres­ident Ríos Montt is a man of great per­sonal integ­rity and commitment. ... I know he wants to improve the quality of life for all Guatemal­ans and to promote social justice.”

En sagan ber Montt ekki svo góðan dóm. Hann er eitt nafn á löngum lista ein­ræð­is­herra studdir af Banda­ríkj­unum sem voru ekki vandir að með­ulum. Árið 2012 var Montt fund­inn sekur um þjóð­ar­morð og glæpi gegn mann­kyn­inu.

Íhlut­anir Banda­ríkja­manna í heims­álf­unni eru sveip­aðar hulu og hafa gefið til­efni til mis­jafn­lega langsóttra sam­sær­is­kenn­inga. Um vissa hluti er þó ekki deilt, eins og þá stað­reynd að Banda­ríkja­menn þjálf­uðu her­menn frá Mið og Suður-Amer­íku­löndum í her­stöð sinni School of Americas sem áttu eftir að fremja grimmi­lega stríðs­glæpi.

Mik­il­vægur þáttur í því að leggja mat á heil­indi utan­rík­is­stefnu valda­mik­illa landa er að athuga ástand mála í helstu nágranna­ríkjum þeirra, helstu við­skipta­löndum og næsta áhrifa­svæðis. Það er sér­kenni­leg þver­sögn í orð­ræðu banda­rískrar utan­rík­is­stefnu að ætla að tryggja öryggi í heim­inum – fjar­lægja ógn­ina sem stafar af hryðju­verka­mönnum - og flytja út lýð­ræði og rétt­ar­ríkið og taka þá fyrir fjar­læg og fram­andi lönd í Mið-Aust­ur­löndum.

Umdeild landamæri


Þegar Mexíkó lýsti fyrst yfir sjálf­stæði árið 1821 teygði það sig yfir það sem nú er Gvatemala í suðri og Kalíforníu, Nýju Mexíkó og Texas í norðri. Mexíkó taldi nærri fimm milljón fer­kíló­metra, sam­an­borið við þá tæpu tvo sem Mexíkó nútím­ans er. Eftir stríð Mexíkó og Banda­ríkj­anna 1846-48 afsal­aði Mexíkó sér til­kalli sínu til Texas, Kali­forníu og stórra svæða í öðrum landamæra­ríkjum við Mexíkó sem áður til­heyrðu því. Sögulega hefur því lengi verið tog­streita á milli Banda­ríkj­anna og Mexíkó og landamæra­svæði þess verið vett­vangur átaka um land.

[caption id="attachment_9582" align="alignnone" width="500"] Þegar Mexíkó lýsti yfir sjálf­stæði 1821 náðu landa­mæri þeirra frá Gvatemala í suðri og til og með Kali­forníu og Texas í norðri.[/caption]

Landa­mærin á milli Mexíkó og Banda­ríkj­anna eru þau fjöl­förn­ustu í heimi, um 250 millj­ónir manna ferð­ast yfir þau á ári hverju. Í Mexíkó búa rúm­lega 118 millj­ónir manna. Mexíkóska hag­kerfið er tíunda stærsta í heim­inum að teknu til­liti til kaup­máttar. Strax og Frí­versl­un­ar­samn­ingur Norður-Ameríku (NAFTA) var sam­þykktur árið 1994 féll mexíkóski pesóinn um 40%, fólk í land­bún­aði tap­aði vinn­unni en færð­ist í iðn­að­ar­vinnu (maquiladora). Ásókn banda­rísks fjár­magns í mexíkóskt vinnu­afl og öfugt er ekki nýleg þróun. En um leið og farið er yfir landa­mærin frá Banda­ríkj­unum til Mexíkó, er maður kom­inn í annan, verri og hættu­legri heim.

Viðkvæmt lýðræði


Í end­ur­minn­ingum sínum, sem komu út 2004, við­ur­kenndi Miguel de la Madrid, sem var for­seti Mexíkó 1982-88, að úrslit for­seta­kosn­ing­anna 1988 hefðu verið fals­aðar flokki sínum PRI í vil. PRI stendur fyrir Partido Revolucionario Institucional og var stofn­aður 1929, hann hefur hlotið yfir­burða­sigur í flest­öllum kosn­ingum – kosn­ingar voru nán­ast rúss­neskar í Mexíkó. Undir lok 20. aldar hafði flokk­ur­inn setið við völd í Mexíkó í 71 ár og PRI orðið sam­nefni fyrir spill­ingu.

[caption id="attachment_9583" align="alignnone" width="1024"] Hernum í Mexíkó er óspart beitt gegn eit­ur­lyfja­hringjum þar sem lög­reglan dugar ekki til.[/caption]

Í for­seta­kosn­ing­unum 2000 laut PRI í lægra hald fyrir Vicente Fox, fram­bjóð­anda PAN-stjórn­mála­flokks­ins. Í fréttaum­fjöllun um kosn­ing­arnar sagði New York Times PRI vera „klíku spilltra inn­herja sem hefur loks verið steypt úr stóli”. Á seinni hluta tutt­ug­ustu ald­ar­innar ríkti til­tölu­legur stöð­ug­leiki í und­ir­heimum í Mexíkó, spill­ing var umtals­verð en visst sam­komu­lag ríkti á milli eit­ur­lyfja­smyglar­anna og stjórn­mála­mann­anna í PRI og lög­reglu­manna sem þáðu mútur. Undir lok 20. aldar stórjókst magn eit­ur­lyfja sem flutt voru í gegnum Mexíko og mexíkósk glæpa­gengi efld­ust sam­hliða því.

Neysla


Um langt skeið hafa eit­ur­lyf átt við­komu í Mexíkó á leið sinni til hins ábata­sama mark­aðar í Banda­ríkj­unum. Í dag fer um 90% þess kóka­íns sem neytt er í Banda­ríkj­unum í gegnum Mexíkó og tölu­vert magn heróíns, LSD, metam­fetamíns og maríjúana. Svo lengi sem neysla eit­ur­lyfja er ólög­leg í hinu auð­uga norðri verður fram­leiðsla þeirra og sala raun­veru­legur val­kostur fyrir ungt fólk í Mið- og Suður-Ameríku sem stendur frammi fyrir tak­mörk­uðum atvinnu­tæki­færum.

[caption id="attachment_9585" align="alignnone" width="640"] Eit­ur­lyfja­stríðið í Mexíkó er keyrt áfram af eft­isp­urn í Banda­ríkj­unum eftir dýrum eit­ur­lyfjum á borð við kóka­íni.[/caption]

Áður fyrr var kóka­íni, sem er ábata­samasta eit­ur­lyfið, í meira mæli smyglað beint til Flórída með litlum flug­vélum frá Kólumbíu, þar sem eit­ur­lyfja­kóng­ur­inn Pablo Escobar réði ríkjum. Undir lok 20. aldar höfðu banda­rísk yfir­völd séð við Escobar og Medellín-eit­ur­lyfja­hring hans. Þá fóru kól­umbískir eit­ur­lyfja­fram­leið­endur að smygla land­leið­ina. Mexíkóskir smygl­arar voru fyrst um sinn milli­liðir en sáu sér fljótt leik á borði, þeir fengu greitt fyrir þjón­ustu sína í eit­ur­lyfjum og með tengsl sín í landamæra­svæði Banda­ríkj­anna gátu þeir komið eit­ur­lyfj­unum fljótt í verð. Brátt hættu þeir að vera milli­liðir.

Völdin í eit­ur­lyfja­heim­inum hafa því færst norður, átaka­línan er ekki lengur dregin í frum­skógum Kólumbíu heldur við landa­mæri Banda­ríkj­anna og Mexíkó. Höf­uð­paur­arnir við fram­leiðslu eit­ur­lyfj­anna hafa horfið í skugg­ann af eit­ur­lyfja­hringjum í Mexíkó sem berj­ast um yfir­ráð að aðgengi að Banda­ríkja­mark­aði.

Eiturlyfjastríð


Þann 11. des­em­ber 2006 eða tíu dögum eftir að Felix Calderón (PRI) tók við for­seta­emb­ætt­inu, sendi hann 6.500 her­menn inn í Michoacán-ríki í Vestur-Mexíkó til þess að reyna að ráða nið­ur­lögum La Familia Michoacana-eit­ur­lyfja­hrings­ins. Þremur mán­uðum fyrr átti sér stað atburður í Uruapan, 300 þús­und manna borg, sem olli straum­hvörfum. Vígamenn La Familia vörp­uðu fimm afskornum höfðum inn á dans­gólf skemmti­staðar öðrum víti til varn­aðar. Þessi aðferð, að beita hrotta­legu ofbeldi, pynta, lít­ils­virða og smána fórn­ar­lömbin opin­ber­lega átti héreftir eftir að verða algeng.

La Familia Michoacana er þó ekki öfl­ugur eit­ur­lyfja­hringur og var raunar leystur upp árið 2011. Öfl­ug­ustu eit­ur­lyfja­hringirnir heita Los Zetas og Sinaloa. Sinaloa-hring­ur­inn ræður ríkjum í vest­ur­hluta Mexíkó og Los Zetas í aust­ur­hlut­anum. Átök þeirra á milli og við önnur glæpa­gengi sem og við yfir­völd hafa harðnað. Á þjóð­há­tíð­ar­degi Mexíkó, 15. sept­em­ber 2008 var tveimur hand­sprengjum varpað inn í mann­þvögu við aðal­torg Morelia í Michoacánríki, átta manns dóu og a.m.k. 100 manns særð­ust.

[caption id="attachment_9586" align="alignnone" width="1024"] Þegar yfir­völd hafa hendur í hári með­lima eit­ur­lyfja­hringa eru gjarnan haldnir frétta­manna­fundir. Það virð­ist þó sem að maður komi í manns stað.[/caption]

Árið 2009 sendu helstu leið­togar atvinnu­lífs­ins í Ciudad Juarez út neyð­ar­kall til Sam­ein­uðu þjóð­anna og ósk­uðu eftir frið­ar­gæslu­liðum. Um þetta leyti var Ciudad Juarez morð­höf­uð­borg heims­ins og ítök eit­ur­lyfja­hringj­anna orðin það djúp­stæð að þau fjár­kúg­uðu venju­leg fyr­ir­tæki, þ.e. heimt­uðu vernd­ar­skatt. Eit­ur­lyfja­hringirnir í Mexíkó hafa ekki bara tekjur af smygli eit­ur­lyfja, þau stunda einnig fjár­kúgun og mann­rán í miklum mæli enda arð­samt. Jafnvel fátækum far­and­verka­mönnum sem borgað hafa háar fjár­hæðir til þess að kom­ast norður er rænt og snauðum vanda­mönnum þeirra gert að borga fyrir lausn þeirra.

Óöryggi


Níu af hverjum tíu glæpum sem framdir eru í Mexíkó eru ekki til­kynntir til yfir­valda, hvað þá rann­sak­aðir. Árið 2010 voru innan við 5% morða rann­sökuð. Skýrsla Human Rights Watch frá 2011 sem var mjög óvægin bar fyr­i­s­ögn­ina Neither rights nor security. Samkvæmt einni heim­ild hefur verið til­kynnt um 29.707 manns­hvörf frá árinu 2006 og þar af væri yfir 12 þús­und manns enn saknað. Af þessum tæp­lega þrjá­tíu þús­und málum hefur aðeins verið hafin rann­sókn á 291 málum og enn eng­inn verið sak­felldur fyrir manns­rán á því tíma­bili.

Á kort­inu hér fyrir ofan sjást ríki Mexíkó (32) auk landamæra­ríkja Banda­ríkj­anna við landa­mæri Mexíkó sem eru Kali­fornía, Nýja Mexíkó, Arizona og Texas. Þessar tölur standa fyrir

fjölda myrtra á hverja 100.000 íbúa á ári fyrir árið 2013

og eru því sam­bæri­legar milli landa. Það sem vekur strax athygli er tvennt. Í fyrsta lagi eru töl­urnar í Banda­ríkj­unum með eina auka­tölu sem ræðst af því að morð­tíðnin nær hvergi tveggja stafa tölu þar. Í öðru lagi það hversu mikil spönnin er á svæð­inu, efsta gildið er í landamæra­rík­inu Chihuahua í Norður-Mexíkó sem liggur að Nýju Mexíkó og Texas. Lægsta gildið er í Yucatan, hinumegin á land­inu, í Suður-Mexíkó. Munurinn verður enn meira áber­andi ef ein­ingin er færð niður á sveit­ar­fé­lags­stigið. Mesta morð­tíðnin er í Mið-Mexíkó, hærri eftir því sem nær dregur landa­mær­unum. Helsta und­an­tekn­ingin á þessu er Guerrero sem er á suð-vest­ur­strönd Mexíkó og er með næst hæstu morð­tíðn­ina. Í Guerrero eru þekktir ferða­manna­staðir á borð við Acapulco. Þekktasta eit­ur­lyfja­fram­leiðslu­svæðið í Mexíkó er nefnt „

gullni þrí­hyrn­ing­ur­inn

” og er á Sierra Madre-fjall­garð­inum við landa­mæri Chihuahua, Durango og Sinaloa.

Áætlað er að um níu af hverjum tíu skot­vopnum sem notuð eru í eit­ur­lyfja­stríð­inu í Mexíkó komi frá Banda­ríkj­unum. Mikið fram­boð er af skot­vopnum í Banda­ríkj­unum og reglur um kaup á þeim eru rúmar. Van­máttur yfir­valda lýsir sér hvað best í sjálf­skip­uðum varn­ar­sveitum. Borgarar treysta ekki einu sinni lög­reglu­mönnum sem hafa orðið upp­vísir að því að starfa fyrir eit­ur­lyfja­gengi.

Verstu ódæðin sem borist hafa til fjöl­miðla eru fjöldamorðin kennd við San Fernando-sveit­ar­fé­lagið í Tamaulipas, heima­ríki Los Zetas-eit­ur­lyfja­hrings­ins. Árið 2010 fund­ust lík 72 far­and­verka­manna en þeir höfðu verið teknir af lífi með skoti í hnakk­ann og lík­unum því næst hrúgað. Slík kerf­is­bundin fjöldamorð á almennum borg­urum minna á þjóð­ar­morð. Árið 2011 fund­ust lík 193 far­and­verka­manna, flestir frá Mið-Ameríku, í 47 mis­mun­andi fjölda­gröfum.

Hafi ein­hverjum komið það til hugar að ástandið í Mexíkó jaðri við stríðs­á­stand þá er það ekki úr lausu lofti gripið. Molly Molloy bóka­vörður við Rík­is­há­skól­ann í Nýju Mexíkó og sér­fræð­ingur um mál­efni landamæra Mexíkó og Banda­ríkj­anna hefur gagn­rýnt opin­bera töl­fræði um glæpi og mann­fall í Mexíkó og sýnt fram á að heild­ar­fjöldi morða af yfir­lögðu ráði á tíma­bil­inu frá byrjun árs 2007 og út sept­em­ber 2013 sé 135.517 ekki á bil­inu 50 til 80 þús­und eins og oft­ast er greint frá í stórum fjöl­miðlum.

Til sam­an­burðar er áætlað sam­kvæmt opin­berum tölum að um 110 þús­und borg­arar hafi látið lífið í Írak á tíma­bil­inu 2005-2009 (raun­veru­legt mann­fall er mun hærra).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár