Eftirlitsstofnun EFTA skoðar framkvæmd Leiðréttingarinnar

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) fylgist með fram­kvæmd höf­uð­stólslækk­unar á verð­tryggðum lánum, sem gengur undir nafn­inu Leið­rétt­ingin, til að koma í veg fyrir að í henni muni fel­ast rík­is­að­stoð til banka. Þeir sem vænta þess að fá höf­uð­stólslækkun munu vænt­an­lega ekki fá að vita hversu há hún verður fyrr en um næstu mán­að­ar­mót, en til­kynnt hafði verið um það opin­ber­lega að slík vit­neskja myndi liggja fyrir í þess­ari viku.

Þetta kom fram á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í morgun þar sem fjallað var um breyt­ing­ar­til­lögu á lögum um leið­rétt­ingu verð­tryggðra fast­eigna­lána sem sam­þykkt voru í vor. Breyt­ing­ar­til­lagan er lögð fram til að fjölga frá­drátt­ar­liðum við nið­ur­færslu hús­næð­is­lána. Með öðrum orðum er verið að fjölga þeim aðgerðum lána­stof­anna sem drag­ast frá end­an­legri upp­hæð hvers og eins.

Hagnaður og tap


Ástæða þess að ESA fylgist með fram­kvæmd­inni er sú að mjög mis­mun­andi er hvort lán­veit­endur séu að hagn­ast nið­ur­greiðslu rík­is­sjóðs á höf­uð­stóli hús­næð­is­lána. Í lög­unum sem sam­þykkt voru í maí síð­ast­liðnum segir að miða skuli við „að hvorki skap­ist hagn­aður né tap hjá samn­ings­að­ila vegna greiðslu rík­is­sjóðs á leið­rétt­inga­hluta láns“.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að ekki liggi fyrir sam­komu­lag við íslensku við­skipta­bank­ana um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem á að höf­uð­stólslækka sam­kvæmt leið­rétt­inga­á­formum rík­is­stjórn­ar­innar. Ástæða þessa er sú að við­skipta­bank­arnir munu vænt­an­lega fá meira til baka af sumum lánum sínum vegna leið­rétt­ing­ar­innar en þeir gátu vænst ef hún hefði ekki orðið að veru­leika. Þeir eru því að „hagn­ast“ á fram­kvæmd­inni. Sumir líf­eyr­is­sjóðir sem eru á fyrsta veð­rétti á lánum til sjóðs­fé­laga sína „tapa“ hins vegar á því að fá þau upp­greidd, þar sem þeim standa ekki til boða sam­bæri­legir fjár­fest­inga­mögu­leikar fyrir það fé sem þeir fá í stað­inn.

Samn­ings­við­ræður þeirra sem sjá um leið­rétt­ing­ar­á­formin við Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka standa þó enn yfir og unnið er að útreikn­ingum með það fyrir augum að lausn náist.

Frestast til mánaðarmóta


Tryggvi Þór Her­berts­son, verk­efna­stjóri leið­rétt­ing­ar­innar, sagði í sam­tali við Kjarnann í byrjun októ­ber að 95 pró­sent þeirra sem sóttu um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra lána muni fá að vita hvort og þá hversu mikið þau munu fá um miðjan októ­ber. Í dag er 15. októ­ber.

Á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í dag kom fram að upp­lýs­ingar um upp­hæð nið­ur­fell­ingar muni ekki líta dags­ins ljós fyrr en í fyrsta lagi um næstu mán­að­ar­mót.

Leið­rétt­ing verð­tryggðra hús­næð­is­lána snýst um að rík­is­sjóður greiðir allt að 80 millj­arða króna í nið­ur­færslur á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Til þess að eiga mögu­leika á leið­rétt­ingu þurfti fólk að sækja um og rann umsókn­ar­frestur út 1. Sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Alls bár­ust um 69 þús­und umsóknir áður en frest­ur­inn rann út. Á bak­við þær standa um 105 þús­und manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár