Converse stefnir eiginlega öllum vegna "Chuck" eftirlíkinga

Skófram­leið­and­inn Converse, sem er í eigu fat­ar­is­ans Nike, hefur stefnt 31 smá­sölu­keðju, meðal ann­ars Walmart, Kmart, Skechers og H&M, fyrir að fram­leiða og selja eft­ir­lík­ingar af hinum goð­sagna­kenndu "Chuck" striga­skóm. Huffington Post segir frá mál­inu.

Í frétta­til­kynn­ingu sem Converse sendi fjöl­miðlum vegna máls­ins er haft eftir Jim Calhoun for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins að "Chuck Taylor" striga­skórnir hafi notið fádæma vin­sælda til fjölda ára, og á síð­ustu hund­rað árum hafi Converse selt um millj­arð skópara af þessum vin­sælu striga­skóm víða um heim. "Við fögnum heið­ar­legri sam­keppni, en teljum að önnur fyr­ir­tæki hafi engan rétt til þess að herma eftir sögu­frægu útliti "Chuck" striga­skó­s­ins."

Converse All-Star striga­skórnir komu fyrst á markað árið 1917. Í upp­hafi þriðja ára­tug­ar­ins var nafni þeirra breytt í Chuck Taylor All-Stars eftir sam­nefndum körfu­bolta­manni, sem varð mik­ill tals­maður þeirra, og ruddi þar með braut­ina fyrir skófram­leið­endur að merkja vörur sínar frægum ein­stak­lingum við mark­aðs­setn­ingu þeirra.

Í upp­hafi var saumað stjörnu­laga merki á skóna til að vernda ökkla körfu­bolta­leik­manna, en striga­skórnir með gúmmí­tána þró­uð­ust úr því að vera fyrst og síð­ast íþrótta­skór yfir í það að verða gríð­ar­lega vin­sælir á meðal gruggrokk­ara og pönk­ara á níunda ára­tugnum.

Í stefnu Converse, sem var þing­fest fyrir dóm­stólum í New York í síð­ustu viku, er því haldið fram að fram­leiðsla eft­ir­lík­inga á vörum fyr­ir­tæk­is­ins hafi snar­auk­ist síðan árið 2008. Fyr­ir­tækið, sem sendi einnig kvörtun til fram­kvæmda­stjórnar Alþjóð­lega versl­un­ar­ráðs­ins vegna máls­ins, krefst skaða­bóta úr hendi hinna stefndu sem verði ákvarð­aðar fyrir dóm­stólum. Miðað við útbreiðslu eft­ir­lík­inga af Chuck striga­skónum, má reikna með að skaða­bæt­urnar muni nema him­in­há­aum fjár­hæðum, fall­ist dóm­stólar á mála­til­búnað Converse.

Walmart, Kmart og H&M urðu ekki við beiðni Huffington Post um við­brögð við stefnu Converse. Þá sagði tals­kona Skechers skófram­leið­and­ans að fyr­ir­tæk­inu hafi ekki enn borist stefna Converse, og því muni fyr­ir­tækið ekki tjá sig að svo stöddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár