Atvinnuleysi á Íslandi þrjú prósent, í Evrópu er það tíu prósent

Atvinnu­leysi í sept­em­ber síð­ast­liðnum var ein­ungis þrjú pró­sent. Það er minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur frá því í októ­ber 2008, mán­uð­inum sem íslenskt fjár­mála­kerfi hrundi. Þá mæld­ist atvinnu­leysi 1,9 pró­sent. Þetta kemur fram í nýjum atvinnu­leysis­tölum Vinnu­mála­stofn­unar sem gerðar voru opin­berar í gær.

Staðan í atvinnu­málum á Íslandi er umtals­vert betri en hún er í Evrópu. Innan ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins er það 10,1 pró­sent og þegar horft er ein­vörð­ungu til þeirra ríkja sem eru með evru sem gjald­miðil er atvinnu­leysið 11,5 pró­sent. Ísland er einnig í mun betri stöðu en Banda­ríkin þar sem atvinnu­leysi mælist 6,1 pró­sent.

Fór mest í 9,5 prósent 2010


Alls voru 5.029 manns skráðir atvinnu­lausir hér­lendis í síð­asta mán­uði. Þeim fækk­aði um 393 að með­al­tali frá mán­uð­inum á undan. Mest fór atvinnu­leysið upp í 9,5 pró­sent eftir hrun. Það gerð­ist í febr­úar 2010. Síðan hefur það farið hratt lækk­andi sam­hliða auknum hag­vexti, minni verð­bólgu og öðrum jákvæðum hag­tölum.

Rúmlega 500 fleiri konur eru atvinnu­lausar en karlar. Um helm­ingur atvinnu­lausra hefur verið án atvinnu í meira en hálft ár og 1.511 manns hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Á meðal íslenskra ung­menna, á aldr­inum 18 til 24 ára, er atvinnu­leysi fremur lítið. Alls eru 771 í þeim ald­urs­hópi án atvinnu, eða um 14 pró­sent allra skráðra.

Atvinnuleysi lækkar í Evrópu


Staðan er aðeins öðru­vísi í Evrópu. Í ágúst síð­ast­liðnum voru fimm milljón ung­menna undir 25 ára aldri sem búa innan Evr­ópu­sam­bands­ins atvinnu­laus. Það eru um 21,6 pró­sent vinnu­færra manna. Tölurnar fara þó lækk­andi. Alls fækk­aði ungum atvinnu­lausum innan sam­bands­ins um 602 þús­und á milli ára. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Mest er atvinnu­leysið í Grikk­landi, þar sem 27 pró­sent vinnu­færa manna er án atvinnu. Þar á eftir kemur Spánn með 24,4 pró­sent atvinnu­leysi. Þess ber þó að geta að bæði löndin eru þekkt fyrir mikla svarta atvinnu­starf­semi, sér­stak­lega í þjón­ustu­geirum sem tengj­ast ferða­þjón­ustu með ein­hverjum hætti, og því eru líkur á því að raunatvinnu­leysi sé minna en opin­berar tölur gefa til kynna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár