Spenna í gömlu Júgóslavíu - Minnir á sparkið hjá Boban

Blása þurfti leik Serbíu og Albaníu af í gær eftir að slags­mál brut­ust út á vell­inum í Belgrad. Dómarinn Mark Atkinson sá ekki annað fært en að flauta leik­inn af. Atvikið sem leiddi til slags­mála tengd­ist dróna-flugi yfir vell­inum þar sem albanski fán­inn sveif yfir vell­inum. Að lokum ákváðu leik­menn serbneska liðs­ins að toga fán­ann niður, og við það urðu leik­menn Albínu æfir.

Innan skamms tíma var allt orðið vit­laust á vell­inum, og slags­mál brut­ust út á áhorf­enda­bekkj­unum milli Serba og Albana. Knatt­spyrnu­sam­band Evrópu (UEFA) er nú að skoða til hvaða ráð­staf­ana verður gripið, en fréttir frá Serbíu herma að bróðir for­sæt­is­ráð­herra Albaníu, Olsi Rama, hafi átt hlut að máli þegar drón­anum var stýrt yfir vell­inum. Erfitt er að meta áreið­an­leika þess­ara frétta á þessum tíma­punkti.

Atvikið minnir um margt á það þegar upp úr sauð á Maksimir vell­inum í Zagreb, 13. maí 1990, þegar Rauða Stjarnan frá Belgrad og Dinamo Zagreb voru að keppa. Fyr­ir­liði og helsta stjarna Dinamo Zagreb, Zvonomir Boban, réðst á lög­reglu­þjón í átök­unum, sem hafið lamið á króat­ískum leik­mönnum og áhorf­endum. Hann hefur síðan verið þjóð­hetja í Króatíu. Gríð­ar­leg spenna var þá orðin til í gömlu Júgóslavíu, milli þjóð­ar­brota og trú­ar­hópa í land­inu. Að lokum leiddi spennan til skelfi­legra stríðs­á­taka, sem stóðu yfir frá 1991 til og með 1995. Júgóslavía lið­að­ist í sundur í átök­unum, og í kjöl­far þeirra.

Eitt besta lands­lið Evrópu, lands­lið Júgóslavíu, lagð­ist af og var bannað frá keppni á fyrr­nefndu tíma­bili. Júgóslavía tók ekki sæti í úrslita­keppni EM í Svíþjóð 1992, og tóku Danir sæti þeirra, og stóðu að lokum uppi sem sig­ur­veg­arar.

Átökin á Maksimir vell­inum í Zagreb

https://www.youtube.com/watch?v=k18WWhrmLJo

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár