Kemur í ljós á allra næstu vikum hvort Tal og 365 fái að sameinast

Það mun koma í ljós á allra næstu vikum hvort Tal fái að renna inn í fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið 365 miðla. Samruni félag­anna veltur á sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem liggur enn ekki fyrir. Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri eft­ir­lits­ins, seg­ist ekki geta tíma­sett nákvæm­lega hvenær hans sé að vænta en reiknar með því að það verði á næstu vikum.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að núver­andi eig­endur Tals eigi að fá 19,78 pró­sent hlut í 365 miðlum sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­runa félag­anna tveggja. Eign­ar­hlutur félaga á vegum Ingi­bjargar Pálma­dóttur, sem hefur verið aðal­eig­andi 365 miðla um nokk­urra ára skeið, minnkar við þetta niður í 77,97 pró­sent. Eigandi Tals í dag er félagið IP fjar­skipti. Eigendur þess eru fag­fjár­festa­sjóð­ur­inn Auður 1, sem á 94 pró­sent hlut, og félag í eigu Kjartans Arnar Ólafs­sonar, sem á sex pró­sent hlut.

Lífeyrissjóðir verða fjölmiðlaeigendur


Auður 1 er fram­taks­sjóður sem er rekstri fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Virð­ingar. Hann var stofn­aður árið 2008 og þá lögðu rúm­lega 20 fjár­festar honum til alls 3,2 millj­arða króna. Tal er eitt átta fyr­ir­tækja sem sjóð­ur­inn á hlut í.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru stærstu fjár­festar sjóðs­ins íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, meðal ann­ars Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, þó þar sé einnig að finna ein­stak­linga. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins verða því óbeinir eig­endur að stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins verði sam­run­inn sam­þykktur.

Munu óska eftir frekari upplýsingum


Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, sagð­ist í sam­tali við Kjarnann í síð­ustu viku gera ráð fyrir því að nefndin muni óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eig­endur Auðar 1. Hún sagði enn­fremur að lög um fjöl­miðla kveði skýrt á um að fjöl­miðla­nefnd geti óskað eftir upp­lýs­ingum um eign­ar­hald og yfir­ráð yfir fjöl­miðlum. Fjöl­miðla­nefnd fund­aði um málið síð­ast­liðin föstu­dag og mun, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, senda beiðni um frek­ari upp­lýs­ingar um eign­ar­haldið í þess­ari viku.

„Ég geri frekar ráð fyrir að það verði óskað eftir því, en við munum jafn­framt líka fara yfir þetta á fundi fjöl­miðla­nefndar á föstu­dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár