Mikill viðbúnaður í Stokkhólmi vegna bankarána

Mikill við­bún­aður er nú hjá lög­reglu í Stokk­hólmi vegna bankarána sem framin voru í morgun. Ostermalms­torgi hefur verið lokað, en útibú Nordea við Norrmals­torg og Hand­els­bank­ans í næsta nágrenni voru rænd. Þá var afgreiðsla með gjald­eyri einnig rænd, að því er sænska rík­is­út­varpið greinir frá.

Engar upp­lýs­ingar hafa komið fram um hversu miklum pen­ingum ræn­ingj­arnir náðu en þeir voru að minnsta kosti þrír, beittu ógn­unum, vopn­aðir skot­vopni og exi, þegar þeir réð­ust til atlögu. Þeirra er nú leitað.

Lög­reglan í Svíþjóð vinnur að rann­sókn máls­ins. Á vett­vangi hafa fund­ist hlutir sem mögu­lega geta verið sprengjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár