Fyrrum fjármálastjóri RÚV: nútíðarvandi, ekki fortíðarvandi

Fjár­hags­vand­ræði Rík­is­út­varps­ins (RÚV) er nútíð­ar­vandi, ekki for­tíð­ar­vandi og stað­hæf­ingar núver­andi fram­kvæmd­ar­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins um annað eru rangar. Ef hag­ræð­ing­ar­að­gerðir Páls Magn­ús­sonar, fyrrum útvarps­stjóra, sem lagt var af stað með í nóv­em­ber 2013 hefðu verið fram­kvæmdar til fulln­ustu hefði verið komið á jafn­vægi í rekstri RÚV á yfir­stand­andi rekstr­ar­ári og ekk­ert gjald­fall verið á skuldum. Þetta segir Bjarni Krist­jáns­son, fyrrum fjár­mála­stjóri RÚV, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Bjarni hætti störfum hjá RÚV í vor eftir um sjö ára starf hjá fyr­ir­tæk­inu.

Greiðslu­vandi RÚV hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu eftir að fyr­ir­tækið gat ekki greitt af skulda­bréfi sem var á gjald­daga 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í til­kynn­ingu sem RÚV sendi frá sér í kjöl­farið var eft­ir­far­andi haft eftir Magnúsi Geir Þórð­ar­syni, útvarps­stjóra: „Það er ljóst að við erum ekki enn laus við þann for­tíð­ar­vanda sem RÚV hefur lengi glímt við. Sjálf­stæð fjár­hags­leg úttekt stað­festir að RÚV er of mikil og það eru von­brigði að sjá að rekstur RÚV var ekki kom­inn í jafn­vægi eftir nið­ur­skurð­ar­að­gerðir fyrri fram­kvæmda­stjórnar“.

Segir forsvarsmenn RÚV koma sök á Pál


Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag hafnar Bjarni Krist­jáns­son,fyrrum fjár­mála­stjóri RÚV, því að um for­tíð­ar­vanda sé að ræða. Þar segir Bjarni: „Und­an­farnar vikur hafa for­svars­menn RÚV freistað þess að koma sök á fjár­hags­vanda RÚV á fyrr­ver­andi útvarps­stjóra, Pál Magn­ús­son. Umtals­verður tap­rekstur hafi verið hjá félag­inu árum saman og skuldir hrann­ast upp. Þá hafi síð­ustu hag­ræð­ingar Páls ekki dugað til. Þessar stað­hæf­ingar eru allar rangar.“

Hann rekur síðan helstu tölur úr rekstri RÚV und­an­farin ár og segir þær sýna að sá vandi sem RÚV standi frammi fyrir þessa dag­ana sé „því nútíð­ar­vandi en ekki for­tíð­ar­vandi“. Bjarni segir Pál Magn­ús­son, fyrrum útvarps­stjóra og sam­starfs­mann hans til margra ára, hafa tek­ist á við enda­lausa nið­ur­skurði ár eftir ár en alltaf komið rekstr­inum strax í jafn­vægi. „Það er því eng­inn vafi að hefðu þær hag­ræð­ing­ar­að­gerðir, sem Páll skipu­lagði og var byrj­aður á í nóv­em­ber 2013 - og stjórnin með núver­andi útvarps­stjóra inn­an­borðs sam­þykkti - verið fram­kvæmdar til fulln­ustu hefði aftur verið komið á jafn­vægi í rekstri félags­ins á yfir­stand­andi rekstr­ar­ári - og ekk­ert gjald­fall orðið á skuldum. Stjórnin og núver­andi útvarps­stjóri kusu hins vegar að fylgja fram­kvæmd­inni ekki eftir og efndu þar að auki til mik­illa útgjalda sem ekki voru á áætlun. Veldur sá er á heldur,“ segir Bjarni að lokum í grein sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár