Topp 5: Frábærar ræður sem höfðu áhrif

Listin að geta talað fyrir framan fólk liggur ekki fyrir öllum. Margir kunna og geta en lang flestir hafa ein­fald­lega ekki hæfi­leika í það. Svo eru aðeins örfáir sem búa yfir sér­sakri ræðu­snilli og fá tæki­færi á lífs­leið­inni að flytja ræðu sem virki­lega hefur áhrif á áheyr­endur. Kjarninn tók saman fimm frá­bærar ræður sem höfðu áhrif. Flestar eru fluttar við sér­stök til­efni þar sem spennan er mikil, jafn­vel bar­átta upp á líf og dauða í algleym­ingi.

5. Spencer jarl minnist systur sinnar Díönnu


http://www.youtube.com/watch?v=NOtDI_coe2g

Ræða Spencers jarls við útför systur sinnar Díönnu prinsessu af Wales árið 1997 var sjón­varpað um allan heim. Spencer notar þung orð og stór lýs­ing­ar­orð þegar hann lýsir því hvernig hann telur gulu press­una í Bret­landi hafa átt þátt í dauða systur sinnar.

Eft­ir­minni­leg­ast úr ræð­unni: „It is a point to rem­em­ber that of all the iron­ies about Diana, per­haps the greatest was this - a girl given the name of the ancient godd­ess of hunt­ing was, in the end, the most hunted per­son of the modern age.“

4. Hvað getur þú gert fyrir landið þitt?


http://www.youtube.com/watch?v=xE0iPY7XGBo

John F. Kennedy er án efa einn vin­sæl­asti for­seti Banda­ríkj­anna á 20. öld. Kennedy sór emb­ætt­is­eið í jan­úar árið 1961 og flutti í til­efni af því nokkuð langa ræðu sem átti stóran þátt í því að breyta með­vit­und Banda­ríkja­manna um þjóð­erni sitt og skyldur sínar gagn­vart land­inu. Kalda­stríðið var í algleym­ingi og bar­áttan við komm­ún­ismann átti eftir að harðna enn frekar og ná hámarki í Kúbu­deild­unni einu og hálfu ári síðar.

Eft­ir­minni­leg­ast úr ræð­unni: „My fellow Americans: ask not what your country can do for you — ask what you can do for your country.“

3. Rífið niður vegginn


http://www.youtube.com/watch?v=YtYdjbpBk6A

Ronald Reagan var síð­asti for­seti Banda­ríkj­anna til að berj­ast gegn hug­mynda­fræði Sov­ét­ríkj­anna í Kalda stríð­inu. Mikail Gorbachev var þá aðali­rit­ari Komm­ún­ista­flokks­ins og hafði þegar sett fram umbóta­til­lögur á stöðn­uðum sam­fé­lögum Sov­ét­ríkj­anna. Ræða Reagans í Berlín 1987 var, strax eftir að hún var flutt, ekk­ert sér­stak­lega merki­leg ein og sér. En eftir að Berlín­ar­múr­inn féll í nóv­em­ber tveimur árum síðar hefur ræðan orðið eft­ir­minni­leg fyrir bar­átt­una gegn komm­ún­ism­anum. Sumir ganga jafn­vel svo langt að segja að Reagan hafi rekið smiðs­höggið með fræg­ustu orðum ræð­unnar. Þýska dag­blaðið Bild vill enn fremur meina að ræðan hafi breytt heim­inum.

Eft­ir­minni­leg­ast úr ræð­unni: „Mr. Gorbachev, tear down this wall!“

2. Churchill biður um stuðning Bandaríkjanna


http://www.youtube.com/watch?v=R95rjk_nEI8

Winston Churchill, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í seinni Heim­styrj­öld­inni, ávarp­aði sam­einað Banda­ríkja­þing í des­em­ber 1941 til að afla stuðn­ings við hernað banda­manna í Evrópu gegn Nasistum og öxul­veld­unum. Franklin D. Roosevelt, Banda­ríkja­for­seti, hafði þremur vikum áður hafið þát­töku Banda­ríkj­anna í stríð­inu. Churchill biðl­aði til þings­ins um að vera „vopna­búr lýð­ræð­is­ins“ og full­yrti að öxul­veldin myndu ekki stöðva nein­staðar til ná sínu fram. Þjóð­verjar höfðu þá yfir­hönd­ina í stríð­inu en þátt­taka Banda­ríkj­anna gerði mikið fyrir bar­áttu banda­manna og stuðl­aði að lokum að fulln­að­ar­sigri 1945.

Eft­ir­minni­leg­ast úr ræð­unni: „Now we are masters of our own fate.“

1. Ákveðið að fara til Tunglsins


http://www.youtube.com/watch?v=ouRbkBAOGEw

Tungl­kapp­hlaupið og þau áhrif sem það hefur haft á mann­kyns­sög­una og sam­fé­lag manna í dag verða seint mæld enda höfum við engan sam­an­burð, nema kannski það sam­fé­lag sem var fyrir árið 1969, þegar Neil Arm­strong steig fyrstur á yfir­borð Tungls­ins. Tækni­fram­far­irnar sem þessu fylgdu vor svo gríð­ar­legar og nán­ast er hægt að full­yrða að þessum texta væri ekki dreift yfir inter­netið ef ekki hefði verið fyrir ræðu John F. Kennedy á fót­bolta­velli í Texas 1962.

Þegar Kennedy komst til valda árið 1961 var það útbreiddur skiln­ingur Banda­ríkja­manna að Sov­ét­ríkin hefðu tekið fram úr þeim í geim­kapp­hlaup­inu. Nokkrum mán­uðum áður en Kennedy flutti ræð­una í Texas hafði honum tek­ist að sann­færa Banda­ríkja­þing um að veita NASA fé svo hægt væri að fara til Tungls­ins. For­set­inn geirn­elgdi þessa hug­mynd í þjóð­ina í Texas 1962.

Þegar JFK var skot­inn til bana í Dallas rúmu ári síðar var ekki aftur snúið. Þess vegna er þessi ræða svona merki­leg.

Eft­ir­minni­leg­ast úr ræð­unni: „We choose to go to the moon. We choose to go to the moon in this decade and do the other things, not because they are easy, but because they are hard, because that goal will serve to organize and mea­sure the best of our energies and skills, because that challenge is one that we are willing to accept, one we are unwilling to post­pone, and one which we intend to win, and the others, too.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár