„Sjokkerandi óviðeigandi“ tillaga að refsingu Pistoriusar

Suður-afríski hlaupar­inn Oscar Pistor­ius ætti að sitja í stofu­fang­elsi í þrjú ár og sinna sam­fé­lags­þjón­ustu, segir starfs­maður fang­els­is­yf­ir­valda í Suður-Afríku sem gaf álit fyrir dómi Pretoríu í dag. Á allra næstu dögum verður refs­ing yfir Pistor­ius ákveðin en hann myrti unn­ustu sína á heim­ili þeirra í febr­úar 2013.

Joe Maringa, starfs­maður fang­els­is­yf­ir­valda, sagði hlauparann „hafa gott af leið­bein­andi fanga­vist“ og að þessi refs­ing mundi gefa honum tæki­færi til að end­ur­reisa og laga hegðun sína.“ Maringa lagði svo til að hann mundi fá sam­fé­lags­þjónstu­verk­efni sem fælu í sér að sópa götur fyrir utan söfn í Pretoríu og þannig gæti hann byrjað að æfa og keppa í íþróttum á ný.

Gerrie Nel, rík­is­sak­sókn­ari í Suður-Afríku sem rekur málið gegn Pistor­i­usi, var mikið niðri fyrir og lýsti til­lögu Maringa sem „sjokker­andi óvið­eig­andi“ enda væri það engin refs­ing. Ákæru­valdið krefst hins vegar langrar fang­els­is­vistar yfir Pistor­ius. The Guardian greinir frá því að faðir Reevu Steenkamp, unn­ustu Pistor­i­usar, hafi grafið and­lit sitt í höndum sér og að vinir hennar og kunn­ingjar hafi hrist haus­inn á meðan Maringa lýsti til­lögu sinni.

http://www.youtube.com/watch?v=GjJRQi7OIWo

Hægt er að fylgj­ast með dóm­hald­inu í beinni útsend­ingu í spil­ar­anum hér.

Upplifir sig algerlega einskis nýtan


Thokozile Masipa, dóm­ari í mál­inu, hlust­aði í dag á mál­flutn­ing ákærða, ákæru­valds­ins, sál­fræð­ingum og fang­els­is­yf­ir­völdum. Hún mun í kjöl­farið kveða upp úrskurð sinn í mál­inu.

Lore Hartzenberg, sál­fræð­ingur Pistor­i­usar, gaf vitn­is­burð sinn í morgun. Hún hefur sinnt Pistor­i­usi síðan eftir morðið og lýsti því sál­fræði­tímum þeirra þar sem hlaupar­inn hafi grátið, kastað upp, svitnað og gengið ráð­villtur um gólf. Jafn­framt segir hún tæki­færi hans til að jafna sig eftir atburð­inn hafa verið eyði­lagt af „illum fjöl­miðlum“.

„[Pistor­ius] á að öllum lík­indum ekki eftir að jafna sig af atvik­inu ... Herra Pistor­ius upp­lifir sjálfan sig alger­lega einskis nýtan,“ sagði Hartzenberg. Sak­sókn­ari gagn­rýndi hins vegar nið­ur­stöður sál­fræð­ings­ins og sagði Pistor­ius að öllum lík­indum enn hafa tæki­færi til að byggja upp líf sitt og halda áfram með hlaupa­fer­il­inn. „Nú erum við fást við nið­ur­brot­inn mann, en hann er enn á lífi.“

Rík­is­sak­sókn­ar­inn á enn eftir að kalla til tvö vitni til að styðja við til­lögur sínar um fang­els­is­vist sem er að hámarki 15 ár. Í sept­em­ber tók Masipa afstöðu til raka sak­sókn­ara og sagði ákæru­valdið ekki hafa fært sönnur á að Pistor­ius hafi deytt Steenkamp af yfir­lögðu ráði. Pistor­ius heldur því fram að hann hafi haldið mann­eskj­una á bað­her­berg­inu vera inn­brots­þjóf og þess vegna skotið á bað­her­berg­is­dyrnar með skamm­byssu sinni.

Fái Pistor­ius ekki dæmda á sig fang­els­is­vist er lík­legt að það muni vekja óánægju almenn­ings í Suður-Afríku. Enn telja svartir Suður-Afr­íku­búar að auð­ugt hvítt fólk fái auð­veld­ari með­ferð fyrir dóms­stólum, jafn­vel þó 20 ár séu liðin frá enda­lokum aðskiln­að­ar­stefn­unnar í Suður-Afríku.

Í sam­tali við Reuters sagði Mildred Leka­lakala, með­limur í kvenna­hreyf­ingu Afr­íku­þings­ins að þegar öllu væri á botn­inn hvolft hefði ung kona verið myrt og að „ein­hver hljóti að vera ábyrgur“. Masipa mun að öllum lík­indum taka ákvörðun á allra næstu dögum. Ekki er hægt að áfrýja mál­inu fyrr en dóm­hald­inu hefur verið lokið og úrskurður dóm­ara liggur fyrir. Ákæru­valdið getur því enn áfrýjað úrskurði dóm­ar­ans um að ekki hafi verið um morð að yfir­lögðu ráði að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár