Hlutdeild prentmiðla í auglýsingatekjum í frjálsu falli

Hratt fjarar undir sterkri stöðu prent­miðla á íslenska aug­lýs­inga­mark­aðnum. Árið 2010 fóru um 48 pró­sent allra aug­lýs­inga­tekna til prent­miðla. Í dag er hlut­deild þeirra af heild­ar­kök­unni 32 til 37 pró­sent. Þeir hafa því tapað á bil­inu 23 til 33 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á fjórum árum.

Staða prent­miðla á Íslandi er þó enn miklu sterk­ari en tíðkast ann­ars­staðar í heim­inum þar sem þeir hirða tæpan fjórð­ung allra aug­lýs­inga­tekna. Þetta kemur fram í sam­an­tekt sem upp­lýs­inga­þjón­ustan Já fékk helstu birt­ing­ar­hús lands­ins til að gera fyrir sig um hvernig aug­lýs­inga­tekjur skipt­ust milli aug­lýs­inga­miðla. Sigríður Margrét Odds­dóttir, for­stjóri Já, kynnti nið­ur­stöð­una á ráð­stefn­unni Sko sem fram fór í Hörpunni í lok síð­ustu viku.

Engin einn aðili hefur haldið utan um upp­lýs­ingar sem þessar á Íslandi og mjög djúpt hefur verið á því að nálg­ast upp­lýs­ingar sem þessar. Síðast var hægt að nálg­ast slíkar þegar fyr­ir­tækið Birt­ing­ar­húsið tók sig saman og gerði yfir­lit fyrir árið 2010. Á flestum vest­rænum mörk­uðum er hins vegar haldið vel utan um svona töl­fræði og sveiflur á aug­lýs­inga­mörk­uðum birtar jafn óðum.

[caption id="attachment_9339" align="aligncenter" width="957"] Sam­an­tektin er unnin úr upp­lýs­ingum frá nokkrum af stærstu aug­lýs­inga­stofum og birt­ing­ar­að­ilum lands­ins sem deildu með Já skipt­ingu á aug­lýs­inga­fjár­magni á árunum 2013-2014. Um eig­ind­lega rann­sókn er að ræða sem gefur vís­bend­ingu um um á hvaða bili tekjum hvers aug­lýs­inga­mið­ils eru.[/caption]

Lestur dagblaða minnkað hratt


Hluti ástæð­unnar að prent­miðlar hafa haft jafn sterka stöðu hér­lendis og raun ber vitni er til­urð frí­blaða. Frétta­blað­inu er til að mynda dreift frítt í um 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unnar og Frétta­tímin kemur frítt inn á heim­ili fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir hverja helgi. Minnk­andi hlutur prent­miðla í heild­ar­veltu aug­lýs­inga helst hins vegar í hendur við ört minnk­andi lestur þeirra.

Þannig hefur lestur Frétta­blaðs­ins hjá Íslend­ingum á aldr­inum 12-80 ára farið úr 64 pró­sentum árið 2010 í 55,3 pró­sent í dag. Frétta­tím­inn mæld­ist þegar best lét með um 42 pró­sent lestur en er nú með um 37,2 pró­sent. Morg­un­blaðið, stærsta áskrift­ar­blað lands­ins, var lesið af um 43 pró­sent lands­manna árið 2009 en er nú með undir 30 pró­sent lestur. Lesendur Morg­un­blaðs­ins virð­ast líka vera í eldri kant­inum því að í ald­urs­hópnum 18-49 ára lesa ein­ungis um 21 pró­sent lands­manna Morg­un­blaðið.

Útvarp sterkt og sjónvarp sækir á


Sam­an­tekt Já sýnir einnig fram á að íslenski aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn sker sig veru­lega úr á öðrum sviðum en ein­ungis varð­andi styrk prents. Þannig virð­ist lægra hlut­fall aug­lýs­inga­fjár fara í birt­ingu á aug­lýs­ingum í sjón­varpi hér en ann­ar­staðar í heim­inum, þótt það fari hækk­andi. Hér­lendis eyða aug­lýsendur á bil­inu 21-39 pró­sent í sjón­varps­aug­lýs­ingar um þessar mundir á meðan að sjón­varp tók til sín um 41 pró­sent af kök­unni í heim­inum öllum árið 2013.

[quote font="0" align="right"]„Hér­lendis eyða aug­lýsendur á bil­inu 21-39 pró­sent í sjón­varps­aug­lýs­ingar um þessar mundir á meðan að sjón­varp tók til sín um 41 pró­sent af kök­unni í heim­inum öllum árið 2013.“[/quote]

Íslend­ingar aug­lýsa hins vegar mun meira í útvarpi en þekk­ist ann­ars­staðar í heim­inum. Á árunum 2013 og 2014 hafa á bil­inu 10 til 21 pró­sent aug­lýs­inga verið í útvarpi, sem er svipað hlut­fall og var árið 2010 (17 pró­sent). Ann­ars­staðar er með­al­tals­hlutur útvarps­aug­lýs­inga í heild­ar­aug­lýs­inga­tekjum um sjö pró­sent.

Meira leitar til Facebook og Google


Það hefur lengi vakið athygli að aug­lýs­inga­tekjur íslenskra net­miðla hafa sögu­lega verið mun minna hlut­fall af heild­ar­kökkunni en tíðkast hefur erlendis. Þannig fór ein­ungis sjö pró­sent hennar í aug­lýs­ingar á net­inu árið 2010. Í sam­an­tekt Já kemur fram að aug­lýs­inga­tekjur íslenskra net­miðla hafi tvö­fald­ast á síð­ustu þremur árum og nú fara um 12 til 24 pró­sent allra aug­lýs­inga­tekna til þeirra. Það er samt sem áður mun minna en í flestum nágranna­löndum Íslands. Sigríður Margrét sagði í erindi sínu, þegar hún kynnti nið­ur­stöðu sam­an­tekt­ar­innar, að það væri að hluta til við aug­lýs­inga­miðl­anna sjálfa að sakast fyrir að hafa ekki brugð­ist nægi­lega hratt við breyttum þörfum aug­lýsenda. Gera þyrfti braga­bót úr til að stór hluti aug­lýs­inga­mark­að­ar­ins færi ekki til útlanda á erlenda vefi sem Íslend­ingar sækja.

Þar á Sigríður Margrét við aug­lýs­ingar á vefjum á borð við Facebook og Google sem soga til sín sífellt meira af aug­lýs­ingafé íslenskra fyr­ir­tækja. Heim­ildir Kjarnans herma að mörg hund­ruð millj­ónir króna, sem gert var ráð fyrir í áætl­unum flestra stærstu aug­lýs­inga­miðla lands­ins, hafi ekki skilað sér þangað und­an­farið ár vegna þess­arrar þró­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár