Ebóla ógnar súkkulaðinu

Fíla­beins­ströndin er mesta kakó­bauna­fram­leiðslu­land heims­ins, og Ebólu-veiran í Afríku er þegar far­inn að hafa víð­tæk áhrif á fram­leiðsl­una í land­inu, en súkkulaði er sem kunn­ugt er unnið úr baunum. Yfirvöld hafa ákveðið að loka landa­mær­unum að Líberíu og Gíneu en þar fer um gríð­ar­legt magn af kakó­baunum, sem selt er inn á alþjóða­mark­aði.

Um 20 millj­ónir manna búa í Fíla­beins­strönd­inni en ekki hefur enná komið upp eitt ein­asta Ebólu-til­felli í land­inu. Yfirvöld eru þó ugg­andi og telja að það sé aðeins tíma­spurs­mál hvenær fyrsta Ebólu-smitið kemur upp. Alþjóða­sam­tök Kakófram­leið­enda (The World Cocoa Foundation) eru þegar farin að fylgj­ast náið með gangi máli, og eru stærstu hags­mun­að­il­arnir í grein­inni, svo sem Nestlé, Mars og fleiri, farin að teikna upp sviðs­myndir af því ef stór­kost­lega dregur úr fram­boði á mörk­uðum, með þeim afleið­ingum að verð þýtur upp.

Líklega er tölu­vert í að neyt­endur, þar með talið á Íslandi, finni fyrir þessum áhrifum. Og þó. Hlut­irnir geta gerst hratt þegar óút­reikn­an­legir atburðir eru ann­ars vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár