Íslendingar strauja kreditkortin mun meira en í fyrra

Íslend­ingar eyddu sjö pró­sent meira á kredit­kort­unum sínum í sept­em­ber síð­ast­liðnum en í sama mán­uði árið áður. Alls var velta þeirra inn­an­lands sex pró­sent hærri en á sama tíma fyrir ári. Aukning á eyðslu Íslend­inga erlendis var enn meiri. Hún var ell­efu pró­sent meiri í sept­em­ber 2014 en í sama mán­uði árið 2013. Þetta kemur fram í Valitor-vísi­töl­unni sem var birt í morgun.

Inn­an­lands eyddu Íslend­ingar níu pró­sent meira af kredit­korta­heim­ildum sínum í áfeng­is­versl­unum og fjögur pró­sent meira í mat­vöru- og stór­versl­unum. Bens­ín­kostn­aður sem greitt var fyrir með kredit­kortum dróst hins vegar saman um sex pró­sent milli ára.

Þróunin á ekki að koma mikið á óvart. Einka­neyslu Íslend­inga hefur auk­ist mikið á skömmum tíma og inn­flutn­ingur á marg­vís­legum varn­ingi sömu­leiðis. Viðbúið er að einka­neyslan muni aukast enn meira á kom­andi miss­erum þegar aðgerð stjórn­valda, sem nefn­ist leið­rétt­ingin, þar sem mögu­legt verður að fá fé úr rík­is­sjóði til að lækka höf­uð­stól verð­tryggra hús­næð­is­lána, er ekk enn farin að hafa áhrif á efna­hag þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár