Jón Gnarr mun dvelja við stofnun á vegum Rice-háskóla

Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóri Reykja­víkur, mun dvelja við stofnun á vegum banda­ríska Rice-háskól­ans í Houston fram á næsta vor hið minnsta. Þetta stað­festir hann við Kjarnann. Jón upp­lýsti fyrr í kvöld að hann og fjöl­skylda hans muni flytja til Banda­ríkj­anna bráð­lega.

Jón segir í sam­tali við Kjarnann að Rice-háskól­inn hafi boðið honum að dvelja við stofnun sem heitir Center for Energy & Enviromental in the Human Sciences. Jón segir til­boðið vera mjög spenn­andi og að hann og fjöl­skylda hans muni vera í Banda­ríkj­unum fram á vor að minnsta kosti.

Facebook-færslan sem Jón setti inn fyrr í kvöld er svohljóð­andi: „Það er orðið ljóst að við litla fjöl­skyldan munum flytja til Houston Texas eftir ára­mótin. Erum komin með íbúð á ágætum stað og Nonni mun fara í Edgar Allen Poe Elem­ent­ary School. Held að þetta gæti verið upp­hafið að ein­hverju mjög athygl­is­verðu ævin­týri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár