Jón Gnarr flytur til Houston í Bandaríkjunum

Jón Gnarr, sem steig niður úr stóli borg­ar­stjóra í Reykja­víkur í vor, er að flytja til Texas. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann setti inn rétt í þessu.

Facebook-færslan er svohljóð­andi: „Það er orðið ljóst að við litla fjöl­skyldan munum flytja til Houston Texas eftir ára­mótin. Erum komin með íbúð á ágætum stað og Nonni mun fara í Edgar Allen Poe Elem­ent­ary School. Held að þetta gæti verið upp­hafið að ein­hverju mjög athygl­is­verðu ævin­týri."

Jón hefur lítið viljað gefað upp um hvað hann hygg­ist taka sér fyrir hendur eftir að borg­ar­stjóra­ferl­inum lauk, en hann var einn dáð­asti grínisti þjóð­ar­innar áður en hann hellti sér í stjórn­mál. Jón hóf þá kosn­inga­bar­áttu með því að til­kynna að hann lang­aði í þægi­lega inni­vinnu og væri að hug­leiða að stíga inn á svið stjórn­mála. Reykja­vík­ur­borg varð fyrir val­inu sem vett­vangur og vopn­aður lof­orði um að svíkja öll kosn­inga­lof­orð, íslenskuðum Tínu Turner slag­ara og áður séðum óút­reikn­an­leika rúll­uðu Jón og Besti flokkur hans upp borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2010 og hann sett­ist kjöl­farið í stól borg­ar­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár