Fyrst kornið, svo bloggið, svo tístið og svo fjölmiðlarnir

Frum­kvöð­ull­inn Evan Williams er fæddur í Clarks, í Nebraska ríki árið 1972. Hann er alinn upp við bústörf og ýmis störf tengd korna­krinum í heima­hög­unum og soja­bauna­fram­leiðslu. Hvernig hann leidd­ist út í for­ritun og hug­mynda­vinnu ýmis konar er kannski erfitt að greina í nákvæm­is­at­riðum, en þetta byrj­aði allt þegar hann ákvað að hætta í rík­is­há­skól­anum í Nebraska og fara að gera eitt­hvað annað með félaga sínum. Forritun var grunn­ur­inn en ýmsar pæl­ingar um inter­netið og sam­fé­lagið voru aldrei langt undan.

Sú vinna leiddi til fyr­ir­tækis sem margir þekkja frá árdögum bloggs-ins; Blogger.com. Fyr­ir­tækið náði mik­illi fót­festu um allan heim og varð vísir að sam­fé­lags­miðla­hugs­un­inni sem síðar átti eftir verða rótin að ein­hverjum mögn­uð­ustu sam­fé­lags­breyt­ingum síð­ustu ára­tuga. Google sá að Evan og félagar voru að gera eitt­hvað rétt og keypti Blogger árið 2003. Evan fylgdi með og starf­aði hjá Google í tvö ár. Hann hætti til þess að stofna annað fyr­ir­tæki, ásamt fleirum, sem kallað var Twitter. Hann var for­stjóri þess og stjórn­ar­for­maður á árunum 2008 til 2010. Leiddi upp­bygg­ingu fyr­ir­tæks­ins, fjár­mögn­un­ar­ferla og stefnu­mótun, áður en hann hætti. Twitter er risa­vaxið sam­fé­lags­net á alheims­vísu í dag, með meira en 300 millj­ónir not­enda, og er skráð á markað í Banda­ríkj­unum. Even á enn 10 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu.

Verk­efnið sem á hug hans í dag, og hann stofn­aði eftir að hafa hætt hjá Twitter, heitir Medium.com. Það þykir einn fram­sækn­asti fjöl­mið­ill heims­ins, og nýtur sívax­andi vin­sælda. Síðustu 15 ár hafa því verið nokkuð anna­söm hjá þessum bónda­syni frá Nebraska. Það er lík­lega ofnotað að tala um að menn hafi breytt heim­inum, en Even Williams hefur gert það. Eignir hans eru metnar á 3,1 millj­arð Banda­ríkja­dala í dag, eða sem nemur um 400 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár