Topp 10: Óheppilegustu einkennismerkin

Ein­kenn­is­merki eða lógó skil­greina vöru­merki, eru veiga­mik­ill þáttur í að skapa ímynd fyr­ir­tækja og mynda hug­renn­inga­tengsl. Til að sann­reyna þessa full­yrð­ingu má gera ein­falda til­raun á sjálfum sér. Ef maður hugsar um Coca-Cola, Nike eða McDonalds - hvað sér maður þá í huga sér? Jú, ein­kenn­is­merki fyr­ir­tækj­anna. Góð og vel heppnuð lógó leyfa neyt­endum nefni­lega aldrei að gleyma vöru­merkj­unum sem þau standa fyrir, og einmitt það hefur oft og tíðum úrslita­á­hrif á val þeirra á einni vöru umfram aðra. Til­hneig­ingin er nefni­lega sú að fólk hallar sér frekar að ein­hverju sem það þekkir, sem það treystir.

En þegar góð ein­kenn­is­merki geta stuðlað að mik­illi vel­gengni fyr­ir­tækja, geta slæm ein­kenn­is­merki orsakað hið gagn­stæða. Það er nefni­lega að mörgu að hyggja þegar hanna á gott ein­kenn­is­merki. Mik­il­vægt er að gefa sér góðan tíma, og kalla sem flesta að hönn­un­ar­borð­inu til að velta mis­mun­andi útfærslum fyrir sér, því ann­ars er hætta á að útkoman verði skelfi­leg. Hér að neðan eru tíu dæmi um mislukkuð ein­kenn­is­merki, í engri sér­stakri röð, sem eru til þess eins fallin að rústa orð­spori fyr­ir­tækis.

Misskilin barnalækningamiðstöð


Barna­lækn­inga­mið­stöðin í Arl­ington hefur án efa fengið sinn skerf af nei­kvæðri umfjöllun eftir að þetta afar óheppi­lega ein­kenn­is­merki leit dags­ins ljos. Vafa­lítið vinnur mjög hæft fólk í mið­stöð­inni, en mögu­lega mun almenn­ingur mis­skilja starf­semi hennar vegna þessa hræði­lega ein­kenn­is­merkis.

Skiptir máli að huga vel að stafagerðinni


Margir við­skipta­vinir munu hugsa sig tvisvar um áður en þeir kíkja inn í þessa mynd­banda­leigu. Hér er stóri lær­dóm­ur­inn að huga vel að stafa­gerð­inni.

Dansskóli fyrir börn eða dónastaður?


Svart-hvítu dans­andi fígúr­urnar í þessu ein­kenn­is­merki fram­kalla heldur óæski­lega sjón­ræna mynd af þjón­ust­unni sem er í boði hjá þessum barna­dans­skóla. Margur gæti ætlað sem svo að þar væri fyrst og fremst boðið upp á skemmtun fyrir full­orðna.

Einkennismerki apóteks sem segir sex


Hér þarf í raun engin orð til að útskýra hvers vegna ein­kenn­is­merki Kudawara lyfja­versl­un­ar­innar hefur fengið jafn útbreidda athygli á meðal almenn­ings og raun ber vitni. Merkið er sjálf­sagt engin vitn­is­burður um þjón­ust­una sem þangað er hægt að leita eftir.

Ekki alltaf allt sem sýnist


Það getur meira að segja komið mönnum í koll að bregða á það sára­saklausa ráð að nota þrjá bók­stafi í ein­kenn­is­merki. Sé því snúið rétt­sælis í 90 gráður blasir heldur óheppi­leg mynd við. Þetta ein­kenn­is­merki stendur fyrir opin­bera stofnun á ótil­greindum stað, og er í notkun enn þann dag í dag.

Muna að nota spacebar!


Með því að nota hástafi rétt og huga að hæfi­legu bili á milli orð­anna hefði KidsExchange getað komið sér hjá slatta af hneykslan og vand­ræð­an­leg­heitum.

Rómantík missir marks


Instituto de Estudos Ori­entais - Þetta ein­kenn­is­merki átti að sýna fal­legt sól­ar­lag á bak­við gula bygg­ingu, en með því að nota tvær svartar línur til að teikna þak bygg­ing­ar­innar varð nið­ur­staðan allt, allt önnur.

Svo miklu meira en tannlæknaþjónusta


Fljót­lega eftir að þessu ein­kenn­is­merki var hleypt af stokk­unum, sögðu gár­ung­arnir að á þess­ari tann­lækna­stofu væri boðið upp á meira en tann­lækn­ingar.

Barn síns tíma


Þetta ein­kenn­is­merki fyrir æsku­lýðs­starf kaþ­ólsku kirkj­unnar var hannað árið 1973 og hefur unnið til verð­launa. Eftir hvert hneysk­l­is­málið á fætur öðru sem skekið hefur kaþ­ólsku kirkj­una á und­an­förnum árum, þar sem prestar hennar hafa verið sak­aðir um og dæmdir fyrir barn­a­níð, má segja að þetta merki hafi misst marks fyrir um margt löngu.

Tölvumús eða typpi?


Þetta ein­kenn­is­merki væri bara alveg prýði­legt ef músin á merk­inu líkt­ist ekki svona mikið...

Ofan­greindur listi birt­ist á heima­síðu The Untapped Source.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Topp 10

FréttirTopp 10

Topp 10: Kosn­ing­arnar sem breyttu heim­inum

Kosn­ingar skipta sköpum. Þær eru stór­kost­legt fyr­ir­bæri, lýð­ræðið í sinni tær­ustu mynd. Í gegnum sög­una hafa kosn­ingar líka leitt af sér stöðu sem síðan verður að jarð­vegi fyrir öfgar, með skelfi­legum afleið­ingum. En oft hafa þær líka verið lyk­ill­inn að stór­kost­legum mann­rétt­inda­um­bótum og fram­förum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur fjallar tíu mik­il­vægar kosn­ingar, sem svo sann­ar­lega breyttu heim­inum og gangi sög­unnar.1....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár