Topp 10: Kosningarnar sem breyttu heiminum

Kosn­ingar skipta sköpum. Þær eru stór­kost­legt fyr­ir­bæri, lýð­ræðið í sinni tær­ustu mynd. Í gegnum sög­una hafa kosn­ingar líka leitt af sér stöðu sem síðan verður að jarð­vegi fyrir öfgar, með skelfi­legum afleið­ingum. En oft hafa þær líka verið lyk­ill­inn að stór­kost­legum mann­rétt­inda­um­bótum og fram­förum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur fjallar tíu mik­il­vægar kosn­ingar, sem svo sann­ar­lega breyttu heim­inum og gangi sög­unnar.

1. Þýsku þingkosningarnar mars 1933


Mikil stjórn­ar­kreppa var í Þýska­landi í upp­hafi fjórða ára­tug­ar­ins. Það var vegna þess að tveir and­lýð­ræð­is­flokkar, Nas­ista­flokk­ur­inn (NSDAP) og Komm­ún­ista­flokk­ur­inn (KPD), voru með meiri­hluta á þingi. Kosn­ing­arnar í mars 1933 voru haldnar nokkrum dögum eftir þing­hús­brun­ann mikla og nas­istar græddu mikið á því. Þeir bættu við sig 10% og voru með sam­tals 44% og orðnir langstærsti flokk­ur­inn. Með hjálp ann­arra flokka náði Hitler að knýja fram ein­ræði. Hann bann­aði aðra stjórn­mála­flokka og engar fleiri lýð­ræð­is­legar kosn­ingar voru haldnar í valda­tíð hans. Allir þekkja fram­haldið.

2. Forsetakosningar í Bandaríkjunum 1860


Þræla­hald hafði verið mikið þrætu­epli í amer­ískum stjórn­málum í langan tíma fram að þessu og Repúblíkana­flokk­ur­inn bein­línis stofn­aður til höf­uðs þræla­haldi. Demókra­ta­flokk­ur­inn klofn­aði og sam­tals voru fjórir fram­bjóð­endur til kosn­ing­anna. Repúblík­an­inn Abraham Lincoln sigr­aði með tæp­lega 40% atkvæða en 60% kjör­manna. Strax eftir kosn­ing­arnar hófu suð­ur­ríkin, eitt af öðru, að segja sig úr lögum við Banda­ríkin og borg­ara­styrj­öld hófst í kjöl­farið. Eftir fjögur ár af geysi­legu blóð­baði sam­ein­uð­ust Banda­ríkin aftur og þræla­hald var úr sög­unni.

3. Þingkosningar í Suður Afríku 1994


Kosn­ing­arnar mörk­uðu enda­lok hins mikla nið­ur­læg­ing­ar­skeiðs sem Apartheid var. Loksins gátu allir Suður Afr­íku­menn kosið til lög­gjaf­ar­þings óháð kyn­þætti. Nelson Mandela hafði verið lát­inn laus úr fang­elsi fjórum árum áður og hann leiddi African National Congress (ANC) til yfir­burða­sig­urs með tæp­lega 63% fylgi. Mandela varð for­seti og ANC hefur ekki sleppt stjórn­ar­taumunum síðan. National Party (NP), sem hafði stýrt land­inu í krafti apartheid í ára­tugi fékk aðeins 20%. Kjör­dag­ur­inn 27. apríl er þjóð­há­tíð­ar­dagur í Suður Afríku, kall­aður Frels­is­dag­ur­inn.

 

4. Þingkosningar í Nýja Sjálandi 1893


Frjáls­lyndir unnu kosn­ing­arnar með tæp­lega 60% af greiddum atkvæðum en það skiptir í sjálfu sér engu máli. Það sem skiptir máli er að þetta var í fyrsta sinn sem konur fengu að kjósa til þjóð­þings sjálfs­stæðs ríkis. Einungis nokkrum vikum áður höfðu nýsjá­lenskar konur fengið kosn­inga­rétt. Súfra­gettan Kate Sheppard var einn helsti hvata­mað­ur­inn að þessu og Nýja Sjáland komst ræki­lega á kortið í kven­rétt­inda­bar­átt­unni. Ástralía fylgdi þeim 9 árum síðar en Evrópa og Banda­ríkin tóku ekki við sér fyrr en rúm­lega 20 árum síðar.

 

5. Kosningar til Evrópuþingsins 1979


Evr­ópu­sam­starfið hafði verið í þróun frá því snemma á sjötta ára­tugnum og þát­töku­ríki Evr­ópu­banda­lags­ins höfðu sent full­trúa af þjóð­þingum til þess að stýra því. Árið 1979 var Evr­ópu­þingið sett upp og sér­stakir full­trúar kosnir sam­tímis í aðild­ar­lönd­unum. Þetta var fyrsta alþjóða­kosn­ingin, haldin í 9 löndum alls og lög­gjaf­ar­vald sam­bands­ins var stór­bætt. Ekki var eig­in­leg stjórn mynduð en sós­í­alde­mókratar urðu stærsti flokk­ur­inn á þing­inu. Grunn­ur­inn að þeim flokka­banda­lögum sem ennþá eru til var lagður í þessum fyrstu kosn­ingum.

6. Þing og héraðskosningar í Breska Indlandi 1945-1946


Undir lok seinni heim­styrj­aldar var ljóst að Bretar voru að missa tökin á Indlandi. Indian National Congress (INC), flokkur Mahatma Gandhi, vann yfir­burða­sigur ef litið er til þing­sæta með um 60%. En raun­veru­legir sig­ur­ver­arar kosn­ing­anna voru Muhammad Ali Jinnah og Muslim League (AIML) sem unnu afger­andi sigur í þeim hér­uðum þar sem múslimar voru í meiri­hluta. Krafa þeirra um sjálf­stætt Pakistan var því meit­luð í stein þrátt fyrir til­raunir INC til að halda land­inu saman. Indland og Pakistan fengu sjálf­stæði í sitt hvoru lagi árið 1947 og hafa sam­skipti ríkj­anna tveggja verið erfið alla tíð síðan.

7. Þjóðaratkvæðagreiðslur í Austur-Evrópu 1990-1992


Þegar Sov­ét­ríkin og Júgóslavía lið­uð­ust í sundur í upp­hafi tíunda ára­tugs­ins urðu til fjöl­mörg ný ríki. Flest þess­ara ríkja héldu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur til þess að veita til­veru sinni lög­mæti. Alls staðar þar sem slíkar atkvæða­greiðslur voru haldnar var sjálf­stæði sam­þykkt með yfir­burðum (allt að 99%) nema í Svart­fjalla­landi. Rúss­neskir og serbneskir minni­hlutar ákváðu þó yfir­leitt að snið­ganga þessar atkvæða­greiðslur. Þeir héldu jafn­vel sínar eigin atkvæða­greiðslur sem ekki voru við­ur­kenndar af nýju ríkj­unum, t.d. í Suður Ossetíu og Transni­stríu. Eftir atkvæða­greiðsl­una í Bosníu 1992 braust út hið skelfi­lega stríð þar í landi með til­heyr­andi þjóð­ern­is­hreins­unum.

8. Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2000


Kos­ing­arnar 2000 voru þær jöfn­ustu í Banda­ríkj­unum síðan Kennedy vann árið 1960 og í fyrsta sinn síðan á 19. öld sem for­seti var kos­inn með minni­hluta atkvæða. Demókrat­inn Al Gore fékk um hálfri milljón fleiri atkvæði en Repúblík­an­inn George W. Bush. Það merki­leg­asta við þessar kosn­ingar var óvissan, kjör­dagur kom og fór og eng­inn vissi hver var for­seti Banda­ríkj­anna. Fjöl­miðlar brugð­ust alger­lega þegar þeir lýstu yfir sig­ur­veg­ara í ákveðnum ríkjum án þess að hafa nægar upp­lýs­ingar. Þetta var gríð­ar­legt áfall fyrir ríki sem skil­greinir sig sem helsta vígi lýð­ræðis í heim­inum. Dóm­stólar þurftu að skera á hnút­inn í Flórída en öllum var ljóst að pottur var brot­inn í kosn­inga­fram­kvæmd­inni þar. Kosn­ingin var talin eitt alls­herjar klúður og mörg fylki tóku kosn­inga­kerfi sín til end­ur­skoð­unar.

 

9. Þingkosningar í Ítalíu 1994


Árið 1994 ýttu ítalskir kjós­endur á reset-hnapp­inn. Gríð­ar­leg spill­ing­ar­mál og tengsl stjórn­mála­manna við mafí­una komu upp á yfir­borðið og ákveðið var í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu að breyta kosn­inga­kerf­inu. Kosn­inga­úr­slitin sjálf voru hreint ótrú­leg. Hinn stóri flokkur Kristi­legra demókrata missti 177 af 206 þing­sætum sínum. Sós­í­alista­flokk­ur­inn missti 76 af 92 sætum sínum. Fleiri rót­grónir flokkar á hægri og vinstri vængnum misstu nán­ast allt sitt. Hinn nýji flokkur millj­arð­ar­mær­ings­ins og fjöl­miðla­mó­gúls­ins Silvio Berlusconi, Forza Italia, var sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og hefur verið leið­andi afl í ítölskum stjórn­málum æ síðan. Ekki er þó hægt að segja að ítölsk stjórn­mál hafi hreinsað sig af spill­ingu og skandölum við þessa breyt­ingu.

10. Kosningar í Írlandi til breska þingsins 1918


Gríð­ar­leg vatna­skil urðu í kosn­ing­unum. Hófsömu þjóð­ern­is­sinn­arnir IPP voru ger­sigr­aðir af hinum rót­tæku Sinn Féin. Írskir Sam­bands­sinnar unnu stóran sigur í nyrstu sýsl­unum. Sinn Féin liðar, sem margir höfðu tekið þátt í upp­reisn­inni tveimur árum áður og voru jafn­vel í fang­elsi, neit­uðu að mæta til London og settu í stað­inn upp eigið þing í Dublin. Þetta þing lýsti yfir sjálf­stæði lýð­veld­is­ins Írlands og gerði IRA að opin­berum her lýð­veld­is­ins. Stríð við Bretland braust út í kjöl­farið. Stríðinu lauk með því að Írland fékk fullt sjálf­stæði árið 1922 en nyrstu sýsl­urnar sátu eftir í Stóra-Bret­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Topp 10

FréttirTopp 10

Topp 10: Óheppi­leg­ustu ein­kenn­is­merkin

Ein­kenn­is­merki eða lógó skil­greina vöru­merki, eru veiga­mik­ill þáttur í að skapa ímynd fyr­ir­tækja og mynda hug­renn­inga­tengsl. Til að sann­reyna þessa full­yrð­ingu má gera ein­falda til­raun á sjálfum sér. Ef maður hugsar um Coca-Cola, Nike eða McDonalds - hvað sér maður þá í huga sér? Jú, ein­kenn­is­merki fyr­ir­tækj­anna. Góð og vel heppnuð lógó leyfa neyt­endum nefni­lega aldrei að gleyma vöru­merkj­unum sem...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár