Fórnaði öllu og uppskar að lokum

Ein rík­asta unga kona Banda­ríkj­anna, sam­kvæmt Forbes, er Elisa­beth Holmes, þrí­tug að aldri. Eignir hennar eru metnar á 4,5 millj­arða Banda­ríkja­dala eða sem nemur um 550 millj­örðum króna. Holmes hætti námi í Stanford háskóla þegar hún var 19 ára og ákvað að eyða öllum sparn­aði sínum í að stofna fyr­ir­tæki í kringum upp­finn­ingu sem hún hafði unnið að, sem snéri að fram­kvæmd blóðprufa. Fyr­ir­tæki hennar, Theranos, hefur unnið að þróun hug­mynd­ar­innar allt frá árinu 2003 en Holmes hefur sjálft stýrt öllum fjár­magns­söfn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Árang­ur­inn hefur ekki látið á sér standa. Samtals hafa fjár­fest­ing­ar­sjóðir í Kali­forníu lagt fyr­ir­tæk­inu til 400 millj­ónir Banda­ríkja­dala og hafa verð­lagt félagið á ríf­lega 9 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða ríf­lega þús­und millj­arða króna.

Holmes á helm­ing­inn í félag­inu, sem þýðir að hlutur hennar er met­inn á 4,5 millj­arða dala, eins og fyrr segir. Walgreens, ein stærsta lyfja­versl­un­ar­keðja Banda­ríkj­anna, með um 8.100 búðir í Banda­ríkj­unum, ákvað að veðja á blóðuprufu­að­ferðir Theranos en helsti styrki­leiki þeirra er að kostn­að­ur­inn er aðeins brota­brot af því sem blóð­aprufur kosta almennt í dag og áreið­an­leik­inn er auk þess mik­ill. Nákvæmar nið­ur­stöður er hægt að fá með aðeins einum dropa af blóði. Flest bendir til þess að Theranos verði risa­vaxið fyr­ir­tæki í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár