Píratar eyddu rúmri milljón króna í borgarstjórnarkosningar

Heild­ar­kostn­aður Pírata vegna borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í vor var 1.076,268 krónur. Af því fór mest í kynn­ing­ar­kostnað, alls 673.975 krónur, og rekstur kosn­inga­skrif­stofu, alls 278,489 krónur. Píratar upp­lýstu um þetta á heima­síðu sinni í dag.

Alls námu fjár­fram­lög til Pírata í Reykja­vík, svæð­is­bund­ins aðild­ar­fé­lags Pírata í höf­uð­borg­inni, 1.464.664 krónum. Því var rekstr­ar­af­gangur eftir kosn­ing­arnar upp á 388.396 krónur. Af fjár­fram­lögum fram­boðs­ins komu 827 þús­und krónur frá Reykja­vík­ur­borg vegna árangur Pírata í kosn­ing­unum, en þeir komu einum manni, Halldóri Auðari Svans­syni, í borg­ar­stjórn. Hann mynd­aði síðar meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Bjartri Framtíð og Vinstri grænum þar sem Dagur B. Egg­erts­son var gerður að borg­ar­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár