Flótti Íslendinga úr Þjóðkirkjunni heldur áfram

Alls gengu 542 fleiri ein­stak­lingar úr Þjóð­kirkj­unni en í hana á tíma­bil­inu 1. júlí til 30. sept­em­ber 2014. Þeir sem sögðu sig úr henni voru 636 en nýir með­limir voru skáðir 94. Af þeim sem skráðu sig úr kirkj­unni eru 380 fæddir á árunum 1981 til 1995. Þjóð­kirkjan virð­ist því vera sér­lega óvin­sæl hjá Íslend­ingum á aldr­inum 19 til 33 ára. Þetta kemur fram í nýjum tölum Þjóð­skrár um trú­fé­lags­breyt­ingar.

Hjá öðrum trú­fé­lögum var vöxtur frekar en hnignun. Í frí­kirkj­urnar þrjár gengu 105 fleiri en úr þeim og 57 fleiri í önnur trú­fé­lög en úr þeim. Í lífs­skoð­un­ar­fé­lagið Siðmennt gengu 74 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 306 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga.

Skrán­ingu trú­fé­lags hjá Þjóðskrá var breytt árið 2013. Til þess að halda sam­fellu í taln­ingu trú­fé­lags­breyt­inga eru ekki lengur taldir þeir sem skráðir eru í eða úr ótil­greindu trú­fé­lagi né heldur börn á fyrsta ári sem ekki fylgja trú­fé­lags­breyt­ingu for­sjár­manna.

Langflestir segja sig úr Þjóðkirkjunni


Frá april 2010 og út sept­em­ber 2014 skiptu alls 17.607 ein­stak­lingar um trú­fé­lag. Lang­flestir þeirra, eða 8.938, skráðu sig utan trú­fé­lags, 3.273 skráðu sig í Frí­kirkjur, 3.355 í önnur trú­fé­lög og 833 í líf­skoð­un­ar­fé­lagið Siðmennt. Einungis 1.208 ákváðu að skrá sig í Þjóð­kirkj­una á tíma­bil­inu.

Lang­flestir þeirra sem skiptu um trú­fé­lag voru hins vegar að skrá sig úr Þjóð­kirkj­unni, en alls sögðu 13.145 ein­stak­lingar sig úr henni frá apríl 2010 og út júní­mánuð í ár. Það þýðir að 75 pró­sent allra þeirra sem sögðu sig úr trú­fé­lagi voru að segja sig úr Þjóð­kirkunni. Vert er þó að taka fram að Þjóð­kirkjan er langstærsta trú­fé­lag lands­ins með 244.440 með­limi. Það er tæp­lega 500 færri en voru í Þjóð­kirkj­unni árið 1998, þrátt fyrir að Íslend­ingum hafi fjölgað um 53.290 á þessum sextán árum. Ljóst er að fyrir hvern og einn nýjan Íslend­ing sem fæðst hefur inn í Þjóð­kirkj­una á tíma­bil­inu hefur rúm­lega einn sagt sig úr henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár