Stór lán Landsbankans voru verðmetin rangt

Utan­um­hald á hluta stærstu útlána Lands­bank­ans var ógang­sætt og óskil­virkt, for­sendur virð­is­mats þeirra voru í sumum til­fellum óskjal­festar eða rangar, bók­fært virði lán­anna gat reynst hærra en væntar end­ur­heimtur og lán sem flokkuð voru í skilum í skýrslum til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins voru það ekki. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nið­ur­stöðu athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á útlána­safni bank­ans sem birt var á vef þess í síð­ustu viku.

Um er að ræða lán sem voru metin með sér­greindu virð­is­mat út frá virði veð­and­laga eða rekstr­ar­virði. Í nið­ur­stöðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er sér­stak­lega tekið fram að þessar nið­ur­stöður hafi legið fyrir í nóv­em­ber 2013 og að Lands­bank­inn hafi bætt verk­lag sitt mikið síðan þá.

Áhyggjur af því að stór lán væru verðmetin rangt


Fjár­mála­eft­ir­litið hóf fyrir nokkru síðan athugun á útlána­safni Lands­banka Íslands. Mark­miðið var að kanna hversu áreið­an­legt upp­gefið virð­is­mat á lánum stærstu lán­þega bank­ans væri með því að skoða hvernig það virði væri fundið út. Fjár­mála­eft­ir­litið hafði því áhyggjur af því að Lands­bank­inn væri að verð­meta sum af lánum stærstu við­skipta vina sína rangt, og of hátt.

Nið­ur­stöður eft­ir­lits­ins lágu fyrir í nóv­em­ber 2013. Þær byggðu á upp­lýs­ingum og gögnum sem mið­uðu við 30. sept­em­ber 2012. Í til­kynn­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er reyndar sér­stak­lega tekið fram að áður en athug­unin hófst hafi Lands­bank­inn hafið vinnu að þróun og mótun nýs virð­is­mats­fer­ils.

[caption id="attachment_9186" align="aligncenter" width="515"] Steinþór Pálsson er banka­stjóri Lands­bank­ans.[/caption]

Fjölmargar athugasemdir


Í nið­ur­stöðum eft­ir­lits­ins er að finna fjöl­margar athuga­semdir við það hvernig Lands­bank­inn var að meta virði lána sinna. Þar segir orð­rétt: „Fjár­mála­eft­ir­litið taldi að utan­um­hald með lánum sem voru metin með sér­greindu virð­is­mati út frá virði veð­and­laga eða rekstr­ar­virði, væri ógagn­sætt og óskil­virkt. Það skýrð­ist meðal ann­ars af því að virði veð­and­laga var upp­fært með óreglu­bundnum hætti og að for­sendur virð­is­mats­ins voru í sumum til­fellum óskjal­festar eða rangar.

Bókfært virði útlána sem voru í van­efndum og metin með sér­greindu virð­is­mati, gat reynst hærra en mat bank­ans á væntum end­ur­heimtum í þeim til­fellum þar sem bank­inn hafði tekju­fært vexti umfram raun­greiðslur. Hluti af þeim lánum sem voru flokkuð í skilum, í lána­safns­skýrslu sem Lands­bank­inn hf. skilar mán­að­ar­lega til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, reynd­ust vera í van­efndum. Bankinn flokk­aði til dæmis lán í skilum þrátt fyrir að hafa ekki gert ráð fyrir fullum end­ur­heimtum eða gert kyrr­stöðu­sam­komu­lag við lán­þega.

Fjár­mála­eft­ir­litið álítur að Lands­bank­inn hf. sé mis­var­fær­inn í virð­is­mati þeirra útlána sem voru í úrtak­inu. Þar sem úrtakið var ekki valið af handa­hófi verða ekki dregnar álykt­anir út frá athug­un­inni fyrir allt útlána­safn bank­ans.“


Óháður aðili fór yfir úrbætur


Í ljósi þess­arra athuga­semda óskaði Fjár­mála­eft­ir­litið eftir því að banka­ráð Lands­bank­ans myndi fela óháðum aðila að yfir­fara úrbætur bank­ans í kjöl­far athug­un­ar­innar og að sá myndi skila skýrslu um þær til eft­ir­lits­ins. Í nið­ur­stöðum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir: „Skýrslan barst þann 28. febr­úar síð­ast­lið­inn. Nið­ur­staða hennar er að Lands­bank­inn hf. hefur bætt verk­lag sitt mikið eftir að athug­unin fór fram, meðal ann­ars með umtals­verðum breyt­ingum á umgjörð virð­is­mats útlána. Það er mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að við­un­andi úrbætur hafi verið gerðar vegna flestra athuga­semda stofn­un­ar­innar en fyr­ir­hugað er að öðrum úrbótum verði lokið fyrir árs­lok 2014.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár