Topp 5: Ríki með hæstu ráðstöfunartekjurnar

Einka­neysla skiptir Íslend­inga miklu máli. Við viljum hafa nóg af pen­ingum í budd­unni eftir að hafa greitt til sam­neysl­unnar til að kaupa fullt af fínu dóti. Því hærri sem ráð­stöf­un­ar­tekj­urnar eru í byrjun mán­aðar, því ham­ingju­sam­ari virð­umst við vera. Og því lægri sem þær verða, því pirraðri verðum við. Það sést á fjölda þeirra sem nenna að taka þátt í mót­mælum þegar þau snú­ast um pen­inga. Hann er mörg hund­ruð sinnum meiri en þegar verið er að mót­mæla stríðum í fjar­lægum löndum eða eyð­ingu jarðar af manna­völdum.

Efnahags- og fram­fara­stofn­unin (OECD) tekur árlega saman tölur um í hvaða ríkjum hæstu ráð­stöf­un­ar­tekj­urnar eru. Hér fyrir neðan er nýjasta yfir­lit stofn­un­ar­innar, en það sýnir stöðu ríkj­anna í árs­lok 2012. Þess má geta að Ísland kemst ekki á topp 30, enda lækk­uðu ráð­stöf­un­ar­tekjur okkar mest allra aðild­ar­ríkja OECD á árunum 2007 til 2010. Það mun taka tíma, og útsjón­ar­semi, að laga þá stöðu.

5. Sviss


Sviss er þekkt fyrir osta,alpa, klukkur og nán­ast bíræfna banka­leynd. Staða þeirra sem hlut­laus­asta ríkis jarð­ar­innar gerir þeim líka kleift að haga málum sínum öðru­vísi en aðrir. Sviss notar þá stöðu til dæmis til að lokka til sín höf­uð­stöðvar stórra fyr­ir­tækja með afar hag­stæðu skattaum­hverfi. Með­al­ráð­stöf­un­ar­tekjur Sviss­lend­inga, eftir að þeir hafa greitt skatta og gjöld, eru tæp­lega 3,9 millj­ónir króna á ári. Fyrir skatta og gjöld þéna þeir rúm­lega 6,4 millj­ónir króna á ári.

4. Ástralía


Margir eru fastir í þeirri kreddu­hugsun að glæpa­menn séu ólík­legir til að verða nýtir þjóð­fé­lags­þegnar eftir að afplánun þeirra lýkur. Fyrrum fanganý­lendan Ástralía afsannar þá kenn­ingu með stæl. Miklar nátt­úru­auð­lindir hafa vissu­lega hjálpað til en Ástralir eru auk þess leið­andi í fjar­skiptum, fjár­mála­heim­inum og í allskyns fram­leiðslu. Hver og einn Ástrali vinnur sér inn að með­al­tali um sex millj­ónir króna. Eftir skatta skilur sú vinna eftir rúmar fjórar millj­ónir króna í veskjum þeirra að með­al­tali.

3. Lúxemborg


Lúx­em­borg er í hjarta Evrópu, með landa­mæri að öllum löndum meg­in­lands­ins sem skipta mestu máli, er alþjóð­leg fjár­mála­mið­stöð og hýsir nokkrar mik­il­væg­ustu stofn­anir Evr­ópu­sam­bands­ins, eins og Evr­ópu­dóm­stól­inn. Það hjálpar auð­vitað til við að pumpa upp fjár­hag­inn að Lúx­em­borg er eitt umfangs­mesta skatta­skjól ver­aldar. Íbúarnir hafa þó ágætt upp úr þessu öllu saman. Hver og einn íbúi þénar að með­al­tali um 6,4 millj­ónir króna á ári fyrir skatta og gjöld og fær rúm­lega fjórar millj­ónir króna eftir greiðslu þeirra til að eyða að vild.

2. Írland


Írland varð, ásamt Íslandi, aug­lýs­inga­spjalds­drengur (e. poster-boy) fjár­mála­legs óhofs og fram­úr­keyslu þegar alþjóð­lega banka­hrunið skall á haustið 2008. Landið var ítrekað kallað körfu­dæmi (e. basket-case) og ótt­ast var mjög um nán­ustu fram­tíð þess. Það virð­ist hafa verið óþarfi. Lág­skatta­stefna Íranna virð­ist hafa dregið þá mjög fljótt aftur í gang og ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra eru nú þær næst hæstu í heim­inum að með­al­tali á mann. Hver og einn þeirra fær um 4,6 millj­ónir króna í veskið á ári til að eyða í það sem honum sýn­ist.

1. Bandaríkin


Auðvitað er land hinna hug­uðu og frjálsu í fyrsta sæti. Banda­ríkin eru enda valda­mesta ríki heims og heim­ili hins heilaga draums um að hver sé sinnar eigin gæfu smiður. Í banda­rísku útgáf­unni snýst gæfan reyndar nán­ast ein­vörð­ungu um að græða sem mesta pen­inga. Og það er heldur betur að ganga eftir. Þótt mis­skipt­ingin sé vissu­lega mikil þar í landi þá fær hver og einn Banda­ríkja­maður á vinnu­mark­aði að með­al­tali um 4,7 millj­ónir króna árlega í veskið til að ráð­stafa að vild eftir greiðslur skatta og gjalda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár