Síminn vildi ekki Airwaves-tónleika í Vodafone-höll

Símanum fannst ekki spenn­andi að aug­lýsa aðal­tón­leika Iceland Airwaves í Vodafone-höll­inni og er því ekki lengur einn helsti bak­hjarl hátíð­ar­innar. Vodafone-höll­inn er íþrótta­hús knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals en heitir eftir styrkt­ar­að­ila. Sá styrkt­ar­að­ili, Vodafone á Íslandi, er einn helsti sam­keppn­is­að­ili Símans. Tón­leik­arnir sem um ræðir eru með banda­rísku hljóm­sveit­unum War on Drugs og Flaming Lips og fara fram í Vodafone-höll­inni sunnu­dag­inn 9. októ­ber. Um er að ræða lokatón­leika hátíð­ar­innar í ár.

Síminn hefur verið einn helsti styrkt­ar­að­ili Iceland Airwaves árum saman, ásamt Icelandair og Reykja­vík­ur­borg. Það vakti því tölu­verða athygli þegar í ljós kom nýverið að svo væri ekki lengur. Í stað Símans er Lands­bank­inn tek­inn við kefl­inu sem einn helsti bak­hjarl Iceland Airwaves næstu tvö árin hið minnsta.

Horfðu á hvað sambandið gæfi af sér


Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Símans, segir að sam­band fyr­ir­tæk­is­ins við stjórn­endur Airwaves hafi verið gott í gegnum árin. Sam­bandið hafi hins vegar verið við­skipta­legs eðlis og þegar ákvörðun um að halda lokatón­leika hátíð­ar­innar í íþrótta­húsi sem er nefnt eftir einum helsta keppi­naut Símans hafi verið ákveðið í sam­ein­ingu að hvíla sam­starfið. „Við hjá Símanum þökkum Iceland Airwaves fyrir árin saman. Gaman er að sjá hvað hátíðin hefur vaxið og dafnað og tekið fram­förum með hverju árinu undir diggri stjórn Airwaves-liða. Airwaves verk­efnið var einkar[quote font="0" align="right"]„Við horfðum því á hvað sam­starfið gæfi af sér. Eitt af því sem okkur fannst ekki spenn­andi fyrir Símann var að aug­lýsa aðal­tón­leika hátíð­ar­innar í íþrótta­húsi í nafni keppi­naut­anna. Þar sem því virt­ist ekki haggað, ein­hverra hluta vegna, ákváðum við í sam­ein­ingu að hvíla sam­starfið." [/quote] skemmti­legt en þó var sam­band Símans og Iceland Airwaves að sjálf­sögðu við­skipta­legs eðlis.

Það tók mik­inn tíma og fjár­muni. Við horfðum því á hvað sam­starfið gæfi af sér. Eitt af því sem okkur fannst ekki spenn­andi fyrir Símann var að aug­lýsa aðal­tón­leika hátíð­ar­innar í íþrótta­húsi í nafni keppi­naut­anna. Þar sem því virt­ist ekki haggað, ein­hverra hluta vegna, ákváðum við í sam­ein­ingu að hvíla sam­starfið. Nú nýtum við féð í fjölda tón­list­ar­við­burða um allt land til að koma Spotify á fram­færi. Við lítum stolt til sam­starfs­ins við Airwaves í gegnum árin og þökkum sam­starfið."

Grímur Atlason, fram­kvæmda­stjóri Iceland Airwaves, stað­festir að sam­starfi hátíð­ar­innar og Símans sé lokið. „Það var sam­eig­in­leg ákvörðun og Lands­bank­inn er kom­inn inn í stað­inn.“ Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um ástæður sam­starfs­slit­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár