Hagur gisti- og veitingastaða vænkast hratt á síðustu árum

Rekstur gisti- og veit­inga­staða á Íslandi hefur vænkast mjög á síð­ustu árum, í takt við ört fjölg­andi komu erlendra ferða­manna hingað til lands. Þetta sýna upp­lýs­ingar sem Creditinfo hefur tekið saman að beiðni Kjarnans.

Creditinfo tók saman upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingum félaga sem sinna rekstri á eft­ir­töldu: Hótel og gisti­heim­ili án veit­inga­þjón­ustu, hótel og gisti­heim­ili með veit­inga­þjón­ustu, orlofs­dval­ar­staðir og ann­ars konar gisti­að­staða, önnur gisti­að­staða og veit­inga­staðir.

Sveifla upp á rúma þrjá milljarða króna á milli ára


Samkvæmt gögnum Creditinfo voru félögin rekin með 1,6 millj­arða króna tapi árið 2009. Árið eftir nam hagn­að­ur­inn hins vegar rúmum 1,5 millj­örðum króna, en það er sveifla upp á 3,1 millj­arð króna á milli ára. Rekstur félag­anna vænk­að­ist svo enn frekar árið eftir, en hagn­aður félaga í geir­anum árið 2011 nam rétt rúmum fjórum millj­örðum ára. Það er besta ársnið­ur­staða félag­anna til þessa, sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi árs­reikn­ingum. Lík­leg­asta skýr­ingin á upp­sveifl­unni það árið, þrátt fyrir ört fjölg­andi ferða­menn, er sú að lán félag­anna hafi verið færð niður, mögu­lega vegna ólög­mætra geng­is­lána, vegna eft­ir­gjafar skulda eða umbreyt­ingu skulda í hlutafé.

Hagnaður félag­anna árið 2012 nam röskum 2,3 millj­örðum króna, og hátt í 1,8 millj­örðum króna í fyrra. Þess skal getið að tölur fyrir síð­asta ár gefa ekki rétta mynd af hagn­aði félag­anna, eins og fjöldi þeirra í neð­an­greindri töflu gefur til kynna, því enn á stór hluti þeirra eftir að skila árs­reikn­ingi fyrir síð­asta ár, en frestur til að skila inn árs­reikn­ingum fyrir árið 2013 rann út 31. ágúst síð­ast­lið­inn.

[table file="https://docs.google.com/spreadsheets/d/1XdGii7S8FqS0Z2KiMDILiKyfbJmbuGiccc44RaX32Os/export?format=csv"][/table]

*Tölur í þús­undum.

Eiginfjárhlutfallið tekið stórt stökk uppávið á nokkrum árum

Til marks um upp­gang­inn í grein­inni hafa heild­ar­eignir félag­anna auk­ist úr tæp­lega 38,8 millj­örðum króna árið 2009 í tæpa 54 millj­arða króna árið 2012. Á sama tíma varð veru­leg breyt­ing á eig­in­fjár­stöðu félag­anna, það er eignir að frá­dregnum skuldum, því árið 2009 var eigið fé félaga í geir­anum nei­kvætt um hátt í sextán millj­arða króna, eða 40,27 pró­sent, en árið 2012 var eigið fé þeirra tæpir þrír millj­arðar í mínus, eða 5,55 pró­sent. Í fyrra náði eigin fé félag­anna sem um ræðir í fyrsta skipti upp fyrir núllið, en í árs­lok 2013 nam eigið fé þeirra tæpum 4,4 millj­örðum króna, eða 11,25 pró­sent. Staða í lok árs 2009 gefur til kynna hversu skuld­sett félögin voru. Á nokkrum árum hefur því eig­in­fjár­hlut­fall félag­anna hækkað um 51,52 pró­sentu­stig.

Félög­unum hefur að sama skapi fjölgað í takt við sívax­andi straum erlendra ferða­manna til lands­ins. Árið 2009 voru félögin í geir­anum 892 tals­ins, en í lok árs 2012 voru þau orðin 933 að tölu. Sem fyrr liggur ekki fyrir hversu mörg félögin voru í lok síð­asta árs vegna seina­gangs margra þeirra að skila inn árs­reikn­ingum.

Margir vilja meina að nú ríki hálf­gert gull­graf­ara­æði í ferða­manna­brans­anum. Til að mynda spretta hótel upp eins og gorkúlur víða um borg­ina og á lands­byggð­inni. Hvernig þró­unin verður í brans­anum skal ósagt látið, því þrátt fyrir að spár geri ráð fyrir að erlendum ferða­mönnum á Íslandi eigi bara eftir að fjölga, er ekki víst að til staðar sé grund­völlur fyrir hömlu­lausri upp­bygg­ingu gisti­staða. Eftir því sem þeim fjölgar, verður minna til skipt­anna fyrir þá sem berj­ast um bit­ana. Sjálf­sagt munu sumir deyja, og aðrir lifa. Hvað fram­tíðin ber í skauti sér á eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár