Starfsfólk Barnaverndarstofu gagnrýnir ráðherra harðlega

Starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu styður end­ur­skoðun á grund­vall­ar­stoðun barna­vernd­ar­kerf­is­ins, vísar ummælum Eyglóar Harð­ar­dóttur vel­ferð­ar­ráð­herra um annað á bug og vill einnig láta í ljós von­brigði sín með að Eygló hafi ekki „leið­rétt leið­rétt alvar­legar rang­færslur sem birt­ust í Frétta­blað­inu mið­viku­dag­inn 1. októ­ber þess efnis að „engin við­mið séu til um hvað sé góð barna­vernd“ og að gæða­staðla skorti". Starfs­fólkið „vísar því einnig á bug að sam­ráð hafi verið haft í tengslum við end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi barna­verndar og félags­þjón­ustu og skipan starfs­hóps sem vinna á það verk. Stað­reyndin er sú að ráðu­neytið hefur aldrei upp­lýst starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu um að breyt­ingar væru fyr­ir­hug­aðar á verk­efnum stof­unnar og um hugs­an­lega nið­ur­lagn­ingu hennar". Þetta kemur fram í harð­orð­aðri yfir­lýs­ingu sem starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu sendi frá sér rétt í þessu og var sam­þykkt ein­róma. Yfir­lýs­ingin er birt í heild sinni hér að neðan.

Yfir­lýs­ing frá starfs­fólki Barna­vernd­ar­stofu 10. októ­ber 2014.

Að gefnu til­efni ítrekar starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu að það styðji end­ur­skoðun á grund­vall­ar­stoðum barna­vernd­ar­kerf­is­ins. Starfs­fólkið vísar því á bug ummælum sem fram koma í pistli ráð­herra sem birt­ist á Eyjunni mið­viku­dag­inn 8. októ­ber sl. Þar segir að þann 3. októ­ber hafi starfs­fólk stof­unnar brugð­ist „hart við hug­myndum um umfangs­mikla end­ur­skipu­lagn­ingu á stjórn­sýslu barna­vernd­ar­starfs og félags­þjón­ustu“.

Starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu vill einnig láta í ljós von­brigði með að ráð­herra hafi ekki leið­rétt alvar­legar rang­færslur sem birt­ust í Frétta­blað­inu mið­viku­dag­inn 1. októ­ber þess efnis að „engin við­mið séu til um hvað sé góð barna­vernd“ og að gæða­staðla skorti. Ítrekar starfs­fólkið því fyrri yfir­lýs­ingu hvað þetta varðar.

Starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu vísar því einnig á bug að sam­ráð hafi verið haft í tengslum við end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi barna­verndar og félags­þjón­ustu og skipan starfs­hóps sem vinna á það verk. Stað­reyndin er sú að ráðu­neytið hefur aldrei upp­lýst starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu um að breyt­ingar væru fyr­ir­hug­aðar á verk­efnum stof­unnar og um hugs­an­lega nið­ur­lagn­ingu hennar. Í óform­legum munn­legum sam­skiptum ráðu­neytis við for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu kom fram að ráð­herra óskaði ekki eftir full­trúum frá Barna­vernd­ar­stofu í starfs­hóp­inn. Síðar var rætt óform­lega við for­stjóra stof­unnar að Barna­vernd­ar­stofa legði hópnum til starfs­mann. Form­legar upp­lýs­ingar um þetta bár­ust ekki Barna­vernd­ar­stofu fyrr en rétt fyrir hádegi 3. októ­ber sl., eftir að yfir­lýs­ing starfs­fólks hafði verið birt í fjöl­miðlum. Þrátt fyrir að Barna­vernd­ar­stofa hafi leitað eftir því hafa ekki feng­ist upp­lýs­ingar um það frá ráðu­neyti hvaða hlut­verki umræddur starfs­maður á að sinna. Til dæmis er ekki ljóst hvort hann fær að sitja fundi starfs­hóps­ins.

Starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu furðar sig á ummælum ráð­herra í kvöld­fréttum Stöðvar 2 mánu­dag­inn 6. októ­ber sl. um að starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu ætti að hafa frum­kvæði að því að koma að stefnu­mót­un­ar­vinnu á vegum ráðu­neyt­is­ins sem varðar börn og vel­ferð þeirra. Eðli­leg­ast hefði verið að ráð­herra hefði óskað eftir að stofan til­nefndi full­trúa í hóp til að móta fjöl­skyldu­stefnu og til að sitja í vel­ferð­ar­vakt­inni. Það var gert með aðra full­trúa í umræddum hópum eins og kemur fram á heima­síðu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Fjarvera Barna­vernd­ar­stofu í þess­ari vinnu sem og í vinnu varð­andi nýja fram­kvæmda­á­ætlun í barna­vernd og starfs­hópi um end­ur­skoðun barna­vernd­ar­mála er óeðli­leg í ljósi þess að stofan hefur þær lög­bundnu skyldur að vinna að sam­hæf­ingu og efl­ingu barna­vernd­ar­starfs í land­inu og vera ráð­herra til ráð­gjafar í málum sem tengj­ast barna­vernd.

Áréttar starfs­fólk Barna­vernd­ar­stofu því áhuga sinn og vilja til að koma form­lega að stefnu­mót­un­ar­vinnu sem teng­ist barna­vernd­ar­starfi.

Samþykkt ein­róma á fjöl­mennum fundi starfs­manna Barna­vernd­ar­stofu 10. októ­ber 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár