WOWAir stundvísara en Icelandair í september

Flug­fé­lagið WOWAIR var stund­vís­ara en Icelandair bæði í brott­farar- og komuflugi í sept­em­ber­mán­uði. Bæði íslensku félögin voru stund­vís­ari en breska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið easyJet í mán­uð­inum, en þessi þrjú flug­fé­lög voru skráð með fleiri en 50 flug frá Íslandi í sept­em­ber. Þetta kemur fram í tölum sem bók­un­ar­síðan Dohop hefur tekið saman.

Við útreikn­inga sína á stund­vísi flug­fé­lag­anna not­að­ist Dohop við tölur frá Isavia. Fyr­ir­tækið sótti upp­lýs­ingar um áætl­aða brott­fara- og komu­tíma ein­stakra fluga og bar þær tölur saman við það hvenær flug­vél­arnar fóru rauveru­lega í loftið.

Útreikn­ing­arnir sýna að 85 pró­sent brott­fara Icelandair, sem flýgur lang­flest flug til og frá Íslandi, hafi verið á réttum tíma. Meðaltöf í brott­far­ar­flug­unum var 9,69 mín­útur. Hlutfall komufluga sem komu á réttum tíma var 86 pró­sent og með­al­töf þeirra var 6,88 mín­útur.

WOWAir stóð sig aðeins betur. Hlutfall brott­fara sem fóru á réttum tíma var 87 pró­sent og með­al­töf þeirra í mín­útum 8,85 mín­útur. Hlutfall komufluga sem lentu á réttum tíma var 88 pró­sent og með­al­töf 6,12 mín­útur.

EasyJet rekur lest­ina í stund­vísi hjá þeim félögum sem fljúga fleiri en 50 flug til og frá Íslandi. Hlutfall brott­fara sem fóru á réttum tíma hjá breska félag­inu var ein­ungis 63 pró­sent og með­al­töf í mín­útum var 14,28 mín­útur. Hlutfall komufluga EasyJet á réttum tíma var aðeins betra, eða 77 pró­sent. Meðaltöf í mín­útum hjá þeim flugum var 7,09 mín­útur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár