Fyrirtæki Huang Nubo til rannsóknar vegna svikamála

Banka­eft­ir­litið í Huangs­han-hér­aði í Kína hefur hafið opin­bera rann­sókn á Zhongkun Group sam­stæð­unni, sem er í eigu Huang Nubo, fyrir meinta mis­notkun á lánum til fyr­ir­tæk­is­ins. Zhongkun Group, hefur verið sett á sér­stakan svika-gát­lista hjá kín­verska banka­eft­ir­lit­inu, en málið snýst um mis­not­aðar lán­veit­ingar upp á tæpa tólf millj­arða króna. Dag­blaðið China Business Journal greinir frá mál­inu.

Eins og kunn­ugt er hafði kín­verski auð­kýf­ing­ur­inn áhuga á að kaupa Gríms­staði á Fjöllum og ráð­ast þar í tug­millj­arða króna upp­bygg­ingu á ferða­þjón­ustu. Íslensk stjórn­völd mein­uðu Huang að kaupa jörð­ina, en þá stofn­uðu sex sveit­ar­fé­lög á Norður- og Aust­ur­landi einka­hluta­fé­lag með það að mark­miði að eign­ast jörð­ina að hluta og leigja til Huang í 40 ár. Af þessu hefur enn ekki orðið, en kín­verski fjár­festir­inn hefur í milli­tíð­inni rennt hýru auga til upp­bygg­ingar ferða­þjón­ustu á Sval­barða.

Stjórnarmenn og forstjóri Zhongkun Group yfirheyrðir


Kín­verska dag­blaðið greinir frá því að áform Huang Nubo um að kaupa land á Íslandi hafi vakið mikla athygli þar í landi. Yfirmenn Zhongkun Group hafa verið yfir­heyrðir af kín­verska fjár­mála­eft­ir­lit­inu, en þeirra á meðal er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Jiao Qing.

Samkvæmt gögnum banka­eft­ir­lits­ins, frá tíma­bil­inu maí til júlí í fyrra, mis­not­aði félagið Jingyi Tourism Develop­ment, sem er dótt­ur­fyr­ir­tæki Zhongkun Group, lán upp á tæpa fjórtán millj­arða króna frá ICBC bank­anum, með því að nota fjár­magnið til ann­arra verk­efna en lágu til grund­vallar lán­inu. ICBC er iðn­aðar- og versl­un­ar­banki Kína.

Samhliða þessu hefur Zhongkun Group verið sett á sér­stakan svika-gát­lista hjá kín­verskum yfir­völdum, en fyr­ir­tækið og dótt­ur­fé­lög þess eru bendluð við sextán svika­mál sem hljóða upp á hátt í tólf millj­arða króna.

Áður en kín­verska fjár­mála­eft­ir­litið hóf rann­sókn á fyr­ir­tækjum Huang Nubo, voru fram­kvæmdir Zhongkun Group á vatns­vernd­ar­svæði Anhui-hér­aðs stöðv­aðar af umhverf­is­vernd­ar­yf­ir­völdum, en ráð­ist var í fram­kvæmd­irnar á svæð­inu án nokk­urra til­skil­ina leyfa.

Rannsókn kínverska bankaeftirlitsins


Jingyi Tourism Develop­ment, sem er ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, hefur einka­rétt á upp­bygg­ingu og starf­semi ferða­þjón­ustu í þremur alda­gömlum þorpum: í Hongcun, sem er á heimsminja­skrá, Nanping, sem hefur verið notað til sjón­varps- og kvik­mynda­gerðar, og Guanlu, sem er sagður vera dul­ar­fullur íveru­staður kynja­vera sam­kvæmt kín­verskum forn­sögum. Auk þessa rekur fyr­ir­tækið Zhongcheng Villa, sem er þriggja stjörnu hótel.

Árið 2003 hóf fyr­ir­tækið að fjár­festa í fram­kvæmdum á upp­bygg­ingu háklassa ferða­manna­staðar í Hongcun. Samkvæmt heim­ildum China Business Journal, fékk fyr­ir­tækið hátt í tólf millj­arða króna lán frá ICBC til fram­kvæmd­anna árið 2012, en not­aði stóran hluta láns­fjár­hæð­ar­innar til að nið­ur­greiða önnur lán og kom háum fjár­hæðum undan í formi fals­aðra samn­inga við verk­taka. Mis­notk­unin á lán­veit­ing­unum voru síðar stað­fest af fjár­mála­eft­ir­lit­inu í Huangs­han.

Lána­mis­notkun Jingyi varð til þess að fjár­mála­eft­ir­litið í Huangs­han beindi þeim til­mælum til ICBC bank­ans að herða útlána­reglur sínar og krefj­ast end­ur­greiðslu frá Jingyi á fjár­hæðum sem ekki fóru í til­greind verk­efni sem lágu til grund­vallar lán­veit­ing­unum. Samhliða, þann 8. apríl síð­ast­lið­inn, yfir­heyrði fjár­mála­eft­ir­litið fimm ein­stak­linga frá Zhongkun sam­stæð­unni vegna máls­ins, þeirra á meðal for­stjóra sam­stæð­unnar. Auk þessa var fyr­ir­tækið aðvarað fyrir ólög­lega notkun á lánsfé frá ICBC.

[caption id="attachment_9109" align="alignnone" width="640"] Mynd tekin í Hongcun.[/caption]

Vafasamar fjárfestingar og draugaverkefni


Í grein China Business Journal er látið að því liggja að fjár­fest­inga­á­ætl­unum Zhongkun Group sé veru­lega ábóta­vant, og ekki auð­séð hvernig verk­efnin sam­stæð­unnar eigi að skila hagn­aði. Heild­ar­lán Jingyi 2013 námu til að mynda alls 700 millj­ónum Yuan (eða sem sam­svarar tæpum fjórtán millj­örðum króna) og því hefði fyr­ir­tækið ekki náð nauð­syn­legu hlut­falli milli veð­settra eigna á móti árs­tekjum. Grunur leikur á að heild­ar­eignir, tekjur og hagn­aður hafi verið ýktar til að svíkja lán út úr bönk­unum.

Í áður­nefndri grein er sagt frá heim­sókn blaða­manns á risa­vax­inn ferða­manna­stað Jingyi við Quishu stöðu­vatnið, þar sem búið var að byggja tugi bygg­inga, þar sem engan ferða­mann var að sjá og allir vegir á svæð­inu voru auðir. Í dag vinnur Zhongkun Group sam­stæðan að stór­tækum fram­kvæmdum og upp­bygg­ingu ferða­manna­staða í Anhui, Peking, Yunnan og Xinjiang. Miklar og ónýttar bygg­ingar eru á meðal verst varð­veittu leynd­ar­mála Kínverja.

Eins og áður segir er Zhongkun Group sam­stæðan sökuð um aðild að sextán fjársvika­málum fyrir allt að tólf millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár