Sérstakur saksóknari rannsakar nokkur mál tengd SpKef

Embætti sér­staks sak­sókn­ara er með til rann­sóknar nokkur mál tengd Spari­sjóðnum í Keflavík, einnig þekktum sem SpKef, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Rannsókn mál­anna er langt komin og þess er að vænta að ákvörðun verði tekin um hvort þau muni leiða til ákæru innan skamms. Nið­ur­skurður á fjár­fram­lögum til emb­ætt­is­ins gætu þó tafið lok rann­sókn­anna þar sem hluti þeirra rann­sak­enda sem hefur sinnt þeim rann­sóknum hefur verið sagt upp störfum.

Fyrr í þess­ari viku gaf emb­ættið út ákæru á hendur fyrrum for­stjóra SPRON og fjórum stjórn­ar­mönnum sjóð­ins vegna meintra umboðs­svika þegar SPRON lán­aði Exista tvo millj­arða króna þann 30. sept­em­ber 2008. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans snúa þau mál sem tengj­ast spari­sjóðum lands­ins, og eru enn til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, öll að Spari­sjóðnum í Keflavík.

Afkoma kjarnareksturs neikvæð árum saman


Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík virð­ist, sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóð­ina sem kom út í apríl 2014, hafa verið einna verst rek­inn allra spari­sjóð­anna. Vaxta­munur hans var til að mynda oft­ast lægri en hjá öllum hinum sjóð­unum, útlán hans virð­ast hafa verið ótrú­lega illa und­ir­byggð og afkoma sjóðs­ins var nán­ast ein­vörð­ungu bundin við gengi hluta­bréfa sem hann átti.

Vegna þess­ara þátta var afkoma sjóðs­ins af kjarna­rekstri nei­kvæð frá árinu 2003 og fram að þeim degi þegar hann féll. Samtals nam tapið 30 millj­örðum króna, en þorri þeirrar upp­hæðar kom til á árunum 2008 og 2009. Til að setja slakan und­ir­liggj­andi rekstur sjóðs­ins í sam­hengi nam tap af kjarna­rekstri hans, hefð­bund­inni banka­starf­semi, 700 millj­ónum króna á árinu 2006 þrátt fyrir að kynntur hagn­aður fyrir skatta væri tæpir 5,6 millj­arðar króna.

[caption id="attachment_9061" align="aligncenter" width="640"] End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PwC gerði svarta skýrslu um starf­semi spari­sjóðs­ins sem skilað var í apríl 2011. Kjarninn birti skýrsl­una í heild sinni í ágúst 2013.[/caption]

Mjög léleg útlán


Útlánin sem Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík veitti voru mörg hver mjöh léleg. Lán til vensl­aðra aðila voru umtals­verð, 90 pró­sent útlána sem voru með veði í hluta­bréfum voru tryggð með veði í óskráðum bréfum, verð­mæti trygg­inga var í mörgum til­vikum langt undir láns­fjár­hæð og ofmetið.

[caption id="attachment_9063" align="align­right" width="150"] Geir­mundur Krist­ins­son var spari­sjóðs­stjóri SpKef árum saman.[/caption]

Spari­sjóð­ur­inn var hins vegar lítið fyrir að fram­kvæma veð­köll og því var fyr­ir­séð löngu áður en sjóð­ur­inn féll að mikil útlána­töp sem höfðu ekki verið bók­færð væru fram undan.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar er farið yfir stærstu lán­tak­endur sjóðs­ins. Í úrtak­inu sem tekið var voru 23 lána­hópar. Fyr­ir­greiðsla til þeirra nam ell­efu millj­örðum króna í lok árs 2007 en hafði hækkað í 24,3 millj­arða króna í lok árs 2008, meðal ann­ars vegna geng­is­breyt­inga. Þessir hópar fengu sam­tals 26,6 pró­sent af heild­ar­út­lánum spari­sjóðs­ins. Þorri hóps­ins eru umsvifa­miklir aðilar í atvinnu­líf­inu á Suð­ur­nesjum. Í skýrsl­unni segir að „sér­greindar nið­ur­færslur vegna þess­ara lána­hópa í úrtak­inu námu sam­tals tæp­lega 45% af virð­is­rýrnun útlána og krafna spari­sjóðs­ins í lok árs 2008 og rúmum 35% í lok árs 2009“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár