Fer nánast allt til Fréttablaðsins og Morgunblaðsins

Þær aug­lýs­ingar sem Reykja­vík­ur­borg kaupir af fyr­ir­tæk­inu H. Pálsson ehf. eru nán­ast ein­vörð­ungu birtar í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu. Borgin keypti birt­ingar í gegnum fyr­ir­tækið fyrir um 11,5 millj­ónir króna á árinu 2013 og fyrstu átta mán­uðum árs­ins í ár. Þetta kemur fram í sund­ur­lið­uðu svari fjár­mála­stjóra borg­ar­innar við fyr­ir­spurn um málið.

Borg­ar­ráðs­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, lagði fram fyr­ir­spurn nýverið um aug­lýs­inga­kostnað Reykja­víkur á árinu 2013 og það sem af er árinu 2014. Henni var svarað á síð­asta borg­ar­ráðs­fundi. Kjarninn greindi frá svar­inu á þriðju­dag.

H. Pálsson kaupir nánast bara af Fréttablaðinu og Morgunblaðinu


Það vakti athygli í svar­inu að fyr­ir­tæki sem heitir H. Pálsson ehf. fékk sam­tals 11,5 millj­ónir króna greiddar frá borg­inni á tíma­bil­inu vegna birt­inga aug­lýs­inga.

Kjarninn hefur nú fengið sund­ur­grein­ingu á hvar aug­lýs­ingar sem Reykja­vík­ur­borg kaupir af H. Pálsson eru birtar. Í þeirri sund­ur­grein­ingu kemur fram að þær birt­ast nán­ast ein­vörð­ungu hjá Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu. Rúmlega ell­efu millj­ónir króna af þeim 11,5 millj­ónum sem borgin greiddi til H. Páls­sonar vegna birt­inga fór til Frétta­blaðs­ins eða Morg­un­blaðs­ins.

Reykja­vík­ur­borg keypti til við­bótar beint aug­lýs­ingar af 365 prent­miðlum, sem er Frétta­blaðið, fyrir 38,2 millj­ónir króna á árinu 2013 og fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2014. Borgin keypti aug­lýs­ingar af Morg­un­blað­inu fyrir 10,2 millj­ónir króna á sama tíma.

Samtals fengu þessir tveir miðlar, að með­töldum því fé sem rataði til þeirra í gegnum H. Pálsson, um 60 millj­ónir króna frá Reykja­vík­ur­borg vegna birt­inga aug­lýs­inga á ofan­greindu tíma­bili. Til við­bótar keypti borgin birt­ingar í gegnum birt­ing­ar­hús og aug­lýs­inga­stofur fyrir umtals­vert fé. Hlutverk birt­ing­ar­húsa er að kaupa birt­ingar í hinum ýmsu miðlum fyrir við­skipta­vini sína. Þorri þeirra birt­inga rataði einnig til Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins. Heildar­eyðsla borg­ar­innar í birt­ingar á tíma­bil­inu var um 200 millj­ónir króna.

Aug­lýs­ingar sem borgin birtir eru margs­konar. Þær geta verið atvinnu­aug­lýs­ingar, vegna deiliskipu­lags­breyt­inga, styrkja, hug­mynda­sam­keppna, við­burða osfr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár