Var gerð hallarbylting í Norður-Kóreu?

Veikindi Kim Jong-un, æðsta leið­toga Norður-Kóreu, kunna að hafa orðið að jarð­vegi fyrir hall­ar­bylt­ingu í höf­uð­borg Norður-Kóreu. Leið­tog­inn hefur ekki komið opin­ber­lega fram í rúman mánuð og misst af mörgum mik­il­vægum atburðum í sögu þjóð­ar­innar und­an­far­inn mánuð, eins og Kjarninn greindi frá á dög­unum.

Meðal ann­ars lét hann ekki sjá sig þegar stofn­dagur norður-kóreska alþýðu­lýð­veld­is­ins var hald­inn hátíð­legur í síð­asta mán­uði. Það sem fékk fólk til að halda að ástandið væri orðið alvar­legt var þegar hann lét ekki sjá sig til að hylla íþrótta­menn lands­ins þegar þeir snéru heim af Asíu­leik­unum fyrir helgi.

Þvert á móti voru aðrir emb­ætt­is­menn mun sýni­legri en leið­tog­inn sjálfur, sem er óvana­legt í Norður-Kóreu þar sem leið­toga­dýrk­unin er slík að him­inn og jörð snú­ast í kringum hann og ekk­ert ger­ist nema hann hafi ákveðið það. Þrír hátt­settir emb­ætt­is­menn dúkk­uðu nefni­lega upp á loka­há­tíð Asíu­leik­anna í Seúl í nágranna­rík­inu í suðri. Komu tveggja þeirra mátti auð­veld­lega skýra af til­efn­inu. Annar þeirra hefur með íþróttir að gera og hinn hefur tengsl í Seúl. Þriðji mað­ur­inn var hins vegar á úti­velli og vakti koma hans furðu.

Hwang Pyong-so er með­limur Skipu­lags- og leið­sagn­ar­stofn­unnar Norður-Kóreu sem heldur miklum völdum í land­inu. Völd stof­un­ar­innar eru slík að stjórn­mála­skýrendur telja að þau ógni völdum Kim Jong-un. Formleg við­ur­kenn­ing stjórn­valda á að leið­tog­inn „þjá­ist af óþægi­legum kvillum“ hefur verið sem olía á eld þeirra sem telja að hall­ar­bylt­ing hafi verið gerð í Norður-Kóreu.

[quote font="0" align="right"]„Aftaka Sung-taek var það sem braut allar reglur. Það má ekki snerta fjöl­skyldu­með­lim Kim-fjöl­skyld­unnar opin­ber­lega. Eftir að Sung-taek var tek­inn af lífi er Kim Jong-un umkringdur með­limum stofn­un­ar­innar.“[/quote]

Þar er Hwang Pyong-so í lyk­il­hlut­verki. Hann kemur nú opin­ber­lega fram fyrir hönd þjóð­ar­innar á einum stærsta íþrótta­við­burði í Asíu auk þess sem Jang Jin-sung, fyrrum hátt settur emb­ætt­is­maður í örygg­is­ráðu­neyti lands­ins, telur Norður-Kóreu vera í miðri borg­ara­styrj­öld. Jang tal­aði á ráð­stefnu útlaga frá Norður-Kóreu sem haldin var í Hollandi í síð­asta mán­uði og sagði að Skiplags- og leið­sagn­ar­stofn­unin sé nú hætt að fylgja skip­unum leið­tog­ans unga eftir að hafa fylgt föður hans Kim Jong-il í hvert fót­mál á meðan sá lifði. Hlutverk Hwang innan stofn­un­ar­innar er hins vegar óþekkt.

Ómeðvitað borgarastríð


Jang Jin-sung telur jafn­framt að hall­ar­bylt­ingin hafi verið gerð í fyrra og að Kim Jong-un þjóni aðeins sem strengja­brúða Skipu­lags- og leið­bein­inga­stofn­un­ar­innar. Jang hefur síðan hann gerð­ist útlagi frá Norður-Kóreu ritað minn­ingar sínar af starf­inu undir Kim Jong-il og gerst rann­sak­andi hjá Þjóðar­ör­ygg­is­stofn­un­inni í Seúl. Þá gefur hann út New Focus International, sjálf­stæða útgáfu um fréttir frá Norður-Kóreu og grein­ingar á ástand­inu í land­inu.

Jang sagði á ráð­stefn­unni í Hollandi tvær fylk­ingar takast á um völdin í Norður-Kóreu. „Annars vegar er það fólk sem vill halda í ein­ræðið. Hins vegar eru það þeir sem vilja nýta tæki­færið til að fá áhrif. Það er þó ekki þannig að fólk sé að berj­ast gegn ein­ræð­inu. Þetta er ekki með­vitað borg­ara­stríð í raun, heldur aðeins tvær fylk­ingar sem eiga ekki sam­leið,“ sagði Jang í sam­tali við Vice News.

Valdaránið telur Jang hafa orðið á svip­uðum tíma og frændi Kim Jong-un, Jang Sung-taek, var tek­inn af lífi á hrotta­feng­inn hátt fyrir tæpu ári síðan. „Aftaka Sung-taek var það sem braut allar reglur. Það má ekki snerta fjöl­skyldu­með­lim Kim-fjöl­skyld­unnar opin­ber­lega. Eftir að Sung-taek var tek­inn af lífi er Kim Jong-un umkringdur með­limum stofn­un­ar­innar.“

Á meðan þessu stendur er Kim Jong-un fjarri góðu gamni. Suður-kóreskir miðlar greindu frá því fyrir hálfum mán­uði að ónafn­greindir heim­ilda­menn segðu Kim vera stór­reyk­inga­mann, þjást af gigt, offitu, syk­ur­sýki og allt of háum blóð­þrýst­ingi. Aðrir ónafn­greindir heim­ilda­menn segja norður-kóreska lækna hafa heim­sótt Evr­ópu­lönd til að finna leiðir til að lækna Kim. Þá er talið að evr­ópskir læknar hafi jafn­vel ferð­ast til komm­ún­ista­rík­is­ins á Kóreu­skaga til að líta á leið­tog­ann.

Með för sinni til Seúl braut Hwang gegn æðstu reglu ein­ræð­is­ins í Pyongyang; þar er mönnum strang­lega bannað að vera annar eða þriðji valda­mesti maður lands­ins. Það var ekki síst vegna þess að Hwang var í fylgd tveggja örygg­is­varða sem þessi regla var brotin því eng­inn annar en æðsti leið­tog­inn má ferð­ast í fylgd sýni­legrar gæslu. (Sjá efstu mynd frétt­ar­innar).

[caption id="attachment_8750" align="alignnone" width="768"] Kim Jong-un sást síð­ast opin­ber­lega þegar hann heim­sótti verk­smiðju í Pyongyang.[/caption]

Varast skal fregnir


Jafnvel þó vís­bend­ing­arnar líti út fyrir að vera áreið­an­legar og und­ir­byggja skýr­ingar fyrir valdaráni vilja banda­rísk yfir­völd ekki taka svo djúpt í árina að Kim Jong-un hafi verið velt af stóli. Þá er hætt á því að skýr­ingar á fjar­veru Kim séu að hann sé veikur og geti ekki sinnt hefð­bundnum stjórn­ar­at­höfnum.

Yngri systir hans, Kim Yo-jong, hefur til að mynda hlotið aukin völd í fjar­veru bróður síns, þó hún hafi ekki for­sæti á norður-kóreska þing­inu. Yo-jong kom til að mynda fyrst fram opin­ber­lega á þessu ári. Systirin er ekki ókunnug völd­unum í Pyongyang því hún starf­aði sem hjálp­ar­hella föður síns Kim Jong-il þegar sá lá fyrir dauð­anum.

Opin­berar skýr­ingar fyrir óvæntri heim­sókn Hwang Pyong-so til Seúl eru að æðstu flokks­menn hafi verið sendir alla leið á Asíu­leik­ana til að hylla íþrótta­menn­ina, „sem án und­an­tekn­inga fögn­uðu föð­ur­land­inu með óvið­jafn­an­legum eld­móði“. Kim Jong-un er jafn­framt sagður hafa sent þessa menn per­sónu­lega og séð þeim fyrir sér­stakri flug­vél.

Til þess að sýna fram á að hall­ar­bylt­ing hafi verið gerð í Norður-Kóreu þarf fleiri vís­bend­ingar og stað­fest­ingar á að grafið sé undan völdum Kim Jong-un. Leið­tog­inn er sagður búa í vel úti­látnu sum­ar­húsi fjöl­skyld­unnar utan höf­uð­borg­ar­innar þar sem hann hlýtur lækn­ingu við kvillum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár