Ætla að óska eftir frekari upplýsingum um eignarhald 365

Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, seg­ist gera ráð fyrir því að nefndin muni óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eig­endur Auðar 1, fram­taks­sjóðs í rekstri Virð­ingar, sem skráður er með 18,6 pró­sent beinan eign­ar­hlut í fjöl­miðl­aris­anum 365 miðlum á heima­síðu nefnd­ar­innar. Auður 1 er í eigu rúm­lega 20 fjár­festa en eign­ar­haldið er ekki, líkt og tíðkast oft með fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóði, opin­bert. Heim­ildir Kjarnans herma hins vegar að stærstu eig­endur Auðar 1 séu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir auk þess sem nokkrir ein­stak­lingar eiga líka hlut í sjóðnum.

Framtakssjóður með óþekktum eigendum


Kjarninn greindi frá því í morgun að eig­endur Tals munu fá 19,78 pró­sent hlut í 365 miðlum sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­runa félag­anna tveggja. Eign­ar­hlutur félaga á vegum Ingi­bjargar Pálma­dóttur, sem hefur verið aðal­eig­andi 365 miðla um nokk­urra ára skeið, minnkar við þetta niður í 77,97 pró­sent.

Eigandi Tals í dag er félagið IP fjar­skipti. Eigendur þess eru áður­nefndur fag­fjár­festa­sjóður, Auður 1, sem á 94 pró­sent hlut, og Kjartan Örn Ólafsson, sem á sex pró­sent hlut.

365 miðlar eru langstærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins í einka­eigu. Það rekur meðal ann­ars Frétta­blaðið, Stöð 2, Vísi.is og Bylgjuna.

Ari Edwald seldi hluta


Elfa Ýr segir lög um fjöl­miðla kveða skýrt á um að fjöl­miðla­nefnd geti óskað eftir upp­lýs­ingum um eign­ar­hald og yfir­ráð yfir fjöl­miðlum. „Ég geri frekar ráð fyrir að það verði óskað eftir því, en við munum jafn­framt líka fara yfir þetta á fundi fjöl­miðla­nefndar á föstu­dag.“

Á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar sést einnig að hlutur Ara Edwald, sem var for­stjóri 365 miðla um margra ára skeið en lét af störfum í sumar, hefur minnkað úr 6,2 pró­sentum í 2,25 pró­sent. Í sam­tali við Kjarnann sagði Ari að hann hefði selt eitt­hvað af sínum hlut en hann hefði líka þynnst út vegna hluta­fjár­aukn­ingar. Hann vildi ekki segja hver kaup­and­inn að hlutnum var en ljóst er að það er annað hvort félög á vegum Ingi­bjargar Pálma­dóttur eða eig­endur Tals.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár