Skuldir lækka og verðtryggingin vinsæl

Skuldir heim­il­anna á Íslandi halda áfram að lækka og eru nú komnar niður í 99 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu Íslands, sam­kvæmt tölum frá því í júní, sem vitnað er til í Fjár­mála­stöð­ug­leika sem kom út í dag. Er þetta lækkun á skuldum heim­il­anna um 4,6 pró­sentu­stig frá því í fyrra.

Sigríður Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stögðu­leika, sagði í kynn­ingu sinni á fundi í seðla­bank­anum í dag að þetta væri vel við­un­andi skulda­hlut­fall í alþjóð­legum sam­an­burði, einkum þegar horft væri til þjóða sem væri með hús­næð­is­kerfi sem byggði mikið á sér­eigna­stefnu eins og hér tíðkast. „Sé horft til árs­ins 2014 hafa skuldir heim­ila sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu lækkað um tæp­lega 2,1 pró­sentu­stig og að raun­virði um 1,1 pró­sentu. Nýjustu tölur benda því til að skulda­lækkun heim­ila sem hófst snemma árs 2009 sé enn í gangi. Lækkun skulda heim­ila í hlut­falli við lands­fram­leiðslu það sem af er ári má helst rekja til auk­innar lands­fram­leiðslu og afborg­ana en fjár­hæð þeirra hefur verið umfram ný veitt lán,“ segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

Veðrými nýtt í neyslu og skuldir


Fram kemur í rit­inu að aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til lækk­unar verð­tryggðra íbúða­lána, leið­rétt­ingin svo­nefnda, ættu eftir að auka veð­rými heim­ila umtals­vert. Áform um að færa niður verð­tryggð íbúða­lán um 72 millj­arða og heim­ild til þess að nýta sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað til nið­ur­greiðslu íbúða­lána, mun lækka skuld­stöðu heim­ila. „Mat Seðla­bank­ans er að veð­rými sem losnar og hægt er að veð­setja aftur með frek­ari lán­töku sé um 65 pró­sent af fjár­hæð lækk­un­ar­innar. Skulda­nið­ur­færslan mun auka auð heim­il­anna, útgjalda­vilja og þar með einka­neyslu. Líklegt er að stóran hluta þess veð­rýmis sem mynd­ast hjá heim­il­unum muni þau nýta í aukna neyslu og skuld­setn­ingu,“ segir í Fjár­mála­stöðu­leika.

[quote font="0" align="right"]„Skulda­nið­ur­færslan mun auka auð heim­il­anna, útgjalda­vilja og þar með einka­neyslu.“[/quote]

Verðtryggingin vinsæl


Eft­ir­spurn eftir verð­tryggðum fast­eigna­veð­lánum, sem stjórn­völd vinna nú að því að draga úr, á end­anum með lögum, hefur auk­ist mikið að und­an­förnu. Þegar bank­arnir byrj­uðu að bjóða óverð­tryggð lán seinni hluta árs­ins 2009 var eft­ir­spurnin eftir þeim mikil. Margir nýttu sér t.d. nið­ur­fell­ingu á stimp­il­gjöldum vegna end­ur­fjár­mögn­unar, og breyttu verð­tryggðum íbúða­lánum í óverð­tryggð. Í rit­inu segir að á árinu 2013 hafi mátt greina að eft­isp­urn eftir óverð­tryggðum íbúða­lánum hafði minnkað m.a. vegna þess að talið var að þeir sem höfðu huga á, greiðslu­getu og svig­rúm til að breyta verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð hafi verið búnir að slíku. Á þessu ári hefur eft­ir­spurn eftir verð­tryggðum lánum verið meiri en eftir óverð­tryggðum. Ýmsar ástæður geta verið fyrir þess­ari þróun, eins og minnkun verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga, að því er segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika. Þá segir enn fremur að vægi 40 ára verð­tryggðra lána hafi auk­ist jafnt og þétt, en þau bera lægstu mán­að­ar­legu greiðslu­byrði hús­næð­is­lána sem í boði er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár