Universal kaupir víkingahandrit af Baltasar og Ólafi

Banda­ríska kvik­mynda­verið Uni­ver­sal hefur keypt hand­ritið að dramat­ískri vík­inga­spennu­mynd sem leik­stjór­inn Baltasar Kormákur og Ólafur Egilsson hafa unnið að í nálægt ára­tug. Myndin á að heita Vikingr. Frá þessu er greint á vef Hollywood Reporter í kvöld.

Baltasar verður einnig einn af fram­leið­endum mynd­ar­innar þegar hún verður gerð. Hann er ekki ókunn­ugur því að vinna með Uni­ver­sal því hann gerði spennu­mynd­irnar Contraband (end­ur­gerð af Reykja­vík Rott­er­dam) og 2 Guns fyrir kvik­mynda­verið. Báðar gengu þær ákaf­lega vel og skil­uðu góðum arði. Uni­ver­sal er á meðal stærstu kvik­mynda­fram­leið­enda í heim­inum.

Í frétt Hollywood Reporter segir að Vikingr standi Baltasar mjög nærri þar sem sagan snú­ist um árdaga vík­inga­lífs og byggi að hluta til á Íslend­inga­sög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár