Reykjavík auglýsir langmest hjá 365-prentmiðlum

Reykja­vík­ur­borg aug­lýsir lang­mest hjá 365 prent­miðlum, en undir það heyra að minnsta kosti Frétta­blaðið og frétta­vef­ur­inn Vísir. Hún keypti sam­tals birt­ingar á aug­lýs­ingum fyrir 110,2 millj­ónir króna á árinu 2013. Þar af runnu 19,5 millj­ónir króna, um 17 pró­sent allra keyptra birt­inga, til 365-prent­miðla. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2014 hefur hlut­deild 365-prent­miðla auk­ist. Samtals hefur Reykja­vík­ur­borg keypt aug­lýs­ingar af miðl­unum fyrir 18,7 millj­ónir króna. Þeir hafa því fengið beint um 21 pró­sent þeirra 90 millj­óna króna sem höf­uð­borg lands­ins eyðir í birt­ingar aug­lýs­inga. Þetta kemur fram í svar fjár­mála­stjórna borg­ar­innar, Birgis Björns Sig­ur­jóns­sonar, við fyr­ir­spurn borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina um aug­lýs­inga­kostnað Reykja­vík­ur­borgar.

Til við­bótar keypti borgin birt­ingar í gegnum birt­ing­ar­hús og aug­lýs­inga­stofur fyrir umtals­vert fé. Hlutverk birt­ing­ar­húsa er að kaupa birt­ingar í hinum ýmsu miðlum fyrir við­skipta­vini sína. Hluti þeirra birt­inga ratar einnig til 365- prent­miðla. Það hlut­fall aug­lýs­inga­tekna sem rennur frá Reykja­vík­ur­borg til 365-prent­miðla er því nær örugg­lega hærra en ofan­greindar tölur gefa til kynna.

Auglýsingakostnaður


[visualizer id="8840"]

Ríkisútvarpið missir hlutdeild


Í fyrra greiddi borgin Rík­is­út­varp­inu næst mest fyrir birt­ingar á aug­lýs­ingum, eða 8,5 millj­ónir króna. Það þýðir að Rík­is­rekni fjöl­mið­ill­inn fékk 7,7 pró­sent þeirra pen­inga sem stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins eyddi í birt­ingar á aug­lýs­ingum í fyrra. Í ár hefur orðið breyt­ing á og Reykja­vík eytt mun minna í birt­ingar á aug­lýs­ingum hjá Rík­is­út­varp­inu, eða 3,9 millj­ónum króna. Hlut­deild þess af heildar­eyðslu borg­ar­innar hefur því dottið niður í 4,3 pró­sent.

Árvakur, sem gefur út Morg­un­blaðið og heldur úti stærsta frétta­vef lands­ins mbl.is, virð­ist með nokkuð stöðuga áskrift af aug­lýs­inga­tekjum frá borg­inni. Á árinu 2013 fékk útgáfu­fé­lagið 5,5 millj­ónir króna þaðan (um fimm pró­sent af heildar­eyðslu), og á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2014 hafði það fengið um 4,7 millj­ónir króna frá henni (rúm­lega fimm pró­sent af heildar­eyðslu).

Svar fjár­mála­stjóra Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina um aug­lýs­inga­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár