Íslensk upplýsingalög gilda um íslensk TiSA-gögn

TiSA-samn­ing­ur­inn verður gerður opin­ber strax og Ísland hefur und­ir­ritað hann og íslensk upp­lýs­inga­lög gilda um öll gögn sem Ísland leggur fram í samn­ings­við­ræð­unum. Íslensk stjórn­völd virða hins vegar „þá stað­reynd að ólíkar reglur gilda um opin­beran aðgang að upp­lýs­ingum ein­stakra þátt­töku­ríkja".

Þetta kemur fram í skrif­legu svari utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Birgittu Jóns­dóttur, þing­konu Pírata, um TiSA-við­ræð­urnar sem barst í gær. Svarið er hægt að lesa í heild sinni hér.

Kjarninn og ýmsir aðrir fjöl­miðlar víðs­vegar um heim­inn greindu skjölum úr TiSA-við­ræð­unum um aukið frelsi fjár­mála­þjón­ustu á alþjóða­mörk­uðum þann 19. júní síð­ast­lið­inn. Wikileaks komst yfir skjölin, sem eru dag­sett 19. apríl 2014, og kom þeim til val­ina fjöl­miðla. Kjarninn var eini íslenski fjöl­mið­illi sem var boðið að taka þátt í því sam­starfi. Hægt er að lesa skjölin hér.

Fimm ára trúnaður


Á meðal þess sem kom fram í skjöl­unum var að vilji sé til þess að vinda ofan af því reglu­verki sem sett hefur verið á fjár­mála­þjón­ustu eftir hrun, liðka fyrir veru lyk­il­stjórn­enda og sér­fræð­inga í öðrum löndum en þeirra eigin heima­löndum umfram aðra og setja upp ein­hvers konar yfir­þjóð­legan dóm­stól til að taka ákvarð­anir um deilu­mál sem munu spretta upp á milli fjár­mála­fyr­ir­tækja og þjóða í fram­tíð­inni.

Mikil leynd hvílir yfir skjöl­unum sem Kjarninn greindi frá, og birti, og við­ræð­unum í heild. Þær þykja afar við­kvæmar enda verið að sýsla með grund­vall­ar­rétt­indi á vett­vangi sem lýtur í raun engum reglum. Á for­síðu skjal­anna segir meðal ann­ars að ekki megi aflétta trún­aði á þeim fyrr en fimm árum eftir að TiSA-sam­komu­lagið taki gildi eða fimm árum eftir að við­ræð­unum ljúki, fari svo að samn­ingar náist ekki. Á skjöl­unum stendur að þau verði að „vera vistuð í lok­aðri eða öruggri bygg­ingu, her­bergi eða hirslu“.

Talið auka ójöfnuð gríðarlega


Alþjóða­sam­tök starfs­fólks í almanna­þjón­ustu (PSI) hafa gagn­rýnt TiSA-við­ræð­urnar harð­lega. Í skýrslu sem þau gáfu út í lok apríl 2014 segir meðal ann­ars að við­ræð­urnar séu vís­vit­andi til­raun til að auka hagnað stærstu og rík­ustu fyr­ir­tækja og þjóð­ríkja heims á kostnað þeirra sem verst hafa það. Verði sam­komu­lagið að veru­leika muni það auka ójöfnuð gríð­ar­lega.

„Þetta sam­komu­lag mun koma fram við far­and­verka­menn (e. migr­ant workers) sem vöru og tak­marka getu rík­is­stjórna til að tryggja rétt­indi þeirra,“ segir enn fremur í skýrslu PSI.

Heitir samráði


Í svari Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Birgittu Jóns­dóttur vegna TiSA-við­ræðn­anna kemur fram að ákvörðum um að taka þátt í við­ræð­unum hafi verið tekin í des­em­ber 2012, í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar. Öll helstu sam­starfs­ríki Íslands taka einnig þátt í við­ræð­unum.

Í svar­inu kemur fram að Ísland hafi sótt alls níu fundi vegna við­ræðn­anna, þar af sex form­legar samn­ingslotur. Gunnar Bragi heitir sam­ráði við utan­rík­is­mála­nefnd og segir að henni verði gert kleift að koma sjón­ar­miðum sínum á við­ræð­unum á fram­færi.

Hérlend upplýsingalög gilda um innlend gögn


Ein spurn­ingin í fyr­ir­spurn Birgittu er svohljóð­andi: „Er ráð­herra með­vit­aður um að ekki má aflétta trún­aði af skjölum sem liggja til grund­vallar samn­ingnum í fimm ár eftir að sam­komu­lagið tekur gildi og hvernig hyggst ráð­herra gera þing­inu grein fyrir samn­ingnum ef slíkar tak­mark­anir eru í gildi?“

Í svari ráð­herra segir að samn­ing­ur­inn verði gerður opin­ber strax og hann verður und­ir­rit­aður og „um þau gögn sem Ísland leggur fram í samn­ings­við­ræð­unum gilda hér­lend upp­lýs­inga­lög en eins og i öllu alþjóða­sam­starfi verður að virða þá stað­reynd að ólíkar reglur gilda um opin­beran aðgang að upp­lýs­ingum ein­stakra þátt­töku­ríkja. Af hálfu Íslands verður starfað sam­kævmt íslenskri upp­lýs­inga­gjöf en á sama tíma virtur áskiln­aður um trúnað sem önnur þátt­töku­ríki gera áskilnað um þegar kemur að gögnum sem þessi ríki leggja fram“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár