Þorsteinn Már neitar því ekki að Samherji hafi greitt mútur

For­stjóri Samherja víkur vegna umræð­unnar. Neitar því ekki að óeðli­legar greiðslur hafi átt sér stað. Segir ekki að Samherji sé að skella allri skuld á Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara.

Þorsteinn Már neitar því ekki að Samherji hafi greitt mútur
Segir að sér blöskri umræðan Þor­steinn Már segir að hann hafi stigið til hliðar til að stilla umræð­una um Samherja. Mynd: Morgunblaðið/Kristinn

Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem vék til hliðar sem for­stjóri Samherja í dag, segir að hann hafi vikið vegna þess að honum hafi blöskrað umræðan um fyr­ir­tækið, en ekki vegna þess að hann hafi talið sig eða fyr­ir­tæki hafa brotið gegn lögum. „Mér blöskrar orðið umræðan. Samherji er ekk­ert sál­ar­laust fyr­ir­tæki. Það eru 800 starfs­menn á Íslandi og annað eins erlendis. Þessar árásir hér á Íslandi á starfs­fólk og fjöl­skyldur þeirra, mér finnst þetta vera orðið full­langt gengið. Þess vegna, með því að stíga til hliðar, er ég að vona að sú umræða geti róast eitt­hvað,“ segir Þor­steinn í við­tali við Stöð 2.

„Mér blöskrar orðið umræðan“

Þor­steinn segir Samherja hafa óskað eftir fundi með skatt­rann­sókn­ar­stjóra og að hann hafi trú á að þau mál þoli skoðun hvar sem er. Samherji hafi þá líka verið ásakað um pen­inga­þvætti. „Ég held að menn viti ekki alveg hvað þeir eru að tala um. Við höfum verið ásak­aðir um að flytja millj­arða frá Afríku, það er líka rangt. Það eru þarna ákveðnar greiðslur sem að við höfum óskað eftir því að verði farið ofan í og það verði gert,“ segir Þor­steinn Már og skorar á fólk að gæta orða sinna. Spurður hvaða greiðslur hann sé að tala um segir Þor­steinn Már að það séu greiðslur sem hafi verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, án þess að skýra það frekar.

Spurður hvað hafi breyst frá því að Samherji gaf út yfir­lýs­ingu, þar sem skuld­inni var alfarið skellt á Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­mann Samherja og heim­ild­ar­mann Stund­ar­innar, Kveiks, Wikileaks og Al Jazeera, og þar til nú að Þor­steinn hafi séð ástæðu til að stíga til hliðar segir Þor­steinn að það séu aðrar hliðar á mál­inu og þeim verði komið á fram­færi þegar fram í sækir. „Það er kannski ekki allt satt og rétt sem hann segir,“ segir Þor­steinn um Jóhannes. Þegar bent er á að sam­kvæmt gögnum hafi Samherji haldið áfram að greiða mútur eftir að Jóhannes hætti störfum og hvernig hægt sé að skella allri skuld­inni á hann í því ljósi segir Þor­steinn Már: „Við skelltum ekk­ert allri skuld á Jóhannes. Við vorum bara að segja það að við vékum honum úr starfi vegna þess að það voru gerðir hlutir sem að við vorum ekki sam­mála.“

„Þetta mun koma í ljós“

Spurður hvort hann neiti því að Samherji hafi borið fé á menn í Namibíu neitar Þor­steinn því ekki heldur svarar: „Ég segi bara, þetta mun koma í ljós.“

„Sko, Kristján Þór er ekki minn maður í rík­is­stjórn“

Þor­steinn var jafn­framt spurður um fund Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar með honum og namibískum aðilum sem voru staddir hér á landi og fund­uðu með full­trúum Samherja. Var Þor­steinn spurður hvort hann hefði sagt að Kristján Þór væri sinn maður í rík­is­stjórn Íslands. „Sko, Kristján Þór er ekki minn maður í rík­is­stjórn. Mér finnst þessi umræða, ég veit ekki hvað orð ég á að hafa um hana. Kristján Þór getur ekki gert að því að við höfum kynnst fyrir langa löngu.“ Spurður frekar hvort hann hafi verið að nota vin­skap þeirra Krist­jáns Þórs til að sýna Namib­íu­mönnum póli­tísk tengsl sín svar­aði Þor­steinn: „Ef þú átt ein­hverja vini þá mis­notar þú þá ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár