Enn leitað að flugi MH370

Ástr­alska strand­gæslan leitar enn að þotu Mala­ysian Airlines sem hvarf af rat­sjám 8. mars síð­ast­lið­inn, fyrir sjö mán­uðum síðan. Sjáv­ar­botn­inn á suð­austur Ind­lands­hafi hefur verið kort­lagður ítar­lega síð­ustu mán­uði en leit­ar­svæðið þar sem vélin er talin hafa fallið í hafið er gríð­ar­stórt; um það bil 110.000 fer­kíló­metrar. Til sam­an­burðar er Ísland 103.000 fer­kíló­metra stórt að flat­ar­máli. Leitin varð snemma víð­tæk­asta og lang dýrasta leitar­að­gerð í sög­unni.

Leit hófst að nýju í síð­ustu viku þegar leit­ar­hóp­ur­inn hóf að nota sjálf­virkan kaf­bát sem á að varpa enn betra ljósi á hafs­botn­inn þar sem flak vél­ar­innar er talið liggja. Síðan hefð­bund­inni leit á svæð­inu var hætt hefur hugs­an­leg flug­leið vél­ar­innar verið kort­lögð upp á nýtt og leit­ar­svæðið þrengt niður í 60.000 fer­kíló­metra.

Kaf­bát­ur­inn er fram­leiddur af hol­lenska fyr­ir­tæk­inu Furgo sem sér­hæfir sig í rann­sóknum á botni sjávar. Tækið sendir þráð­laus boð til yfir­borðs­ins eftir að hafa komið sér fyrir rétt fyrir ofan hafs­botn­inn. Þar kastar hann frá sér hljóð­bylgjum og tekur ljós­myndir. Gögnin sem kaf­bát­ur­inn safnar eru jafn­framt gríð­ar­lega nákvæm og ljós­mynd­irnar í hárri upp­lausn.

[embed]http://www.youtube.com/watch?v=zvyrK57b8RE[/embed]

Þrátt fyrir þetta góða tæki segj­ast ástr­alski leit­ar­hóp­ur­inn vera hóf­lega bjart­sýnir á að finna flak vél­ar­innar og lík 227 far­þega hennar. Enn hafa engar nýjar vís­bend­ingar borist um hvað hefur orðið að vél­inni síðan síð­ustu rat­sjár­merki bár­ust frá henni nokkrum klukku­tímum eftir að hún hætti að hafa sam­band við flug­um­ferða­yf­ir­völd. Hvarfið hefur því verið kallað mesta ráð­gáta allra tíma í far­þega­flugi.

Ekki nóg með það heldur var hvarf vél­ar­innar, ef gert er ráð fyrir að allir far­þegar og áhöfn flug­vél­ar­innar hafi farist, stærsta og mann­skæð­asta flug­slys í sögu Mala­ysian Airlines og Boeing-þotu­fram­leið­and­ans í 131 dag, eða þar til önnur far­þega­þota sama flug­fé­lags var skotin niður yfir Úkraínu í júlí. Þar fór­ust allir um borð, sam­tals 298 manns.

Kjarninn fjall­aði um hvarf þot­unnar í mars síð­ast­liðnum og rakti helstu kenn­ing­arnar sem hafðar voru um hvað hafi orðið af vél­inni. Hún átti að hafa verið notuð til hryðju­verka, hún skotin niður og vera ein­hver­staðar nið­ur­komin í Pakistan á svip­uðu svæði og Osama Bin Laden hélt sig áður en hann var drep­inn. Lík­leg­ast er þó að hún hafi hrapað í hafið eftir að eitt­hvað fór úrskeiðis um borð.

[caption id="attachment_4173" align="alignnone" width="549"]

Enn er allt á huldu um hvað varð um þot­una sem bar 211 far­þega og áhöfn frá Kuala Lumpúr í byrjun mars.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár