Ekkert bólar á Kim Jong-un leiðtoga N-Kóreu

Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, lét ekki sjá sig þegar sig­ur­sælt lið lands­ins snéri aftur til Pyongyang af Asíu­leik­unum sem fram fóru í nágranna­land­inu Suður-Kóreu. Full­trúar Norður-Kóreu hafa ekki staðið sig betur á Asíu­leikum síðan 1990 og var því tals­verður fjöldi sem hyllti íþrótta­menn­ina við heim­kom­una. En leið­togan var hvergi að finna.

Jong-un hefur ekki sést opin­ber­lega í meira en mánuð sem hefur ýtt undir get­gátur um að hann hrjái alvar­leg veik­indi. Fyrir rúmri viku síðan sagði Guardian frá því að leið­tog­inn hafi ekki mætt á mik­il­vægan þing­fund í norður-kóreska þing­inu og velti fyrir sér vís­bend­ingum um hrak­andi heilsu hans.

Sögu­sagnir um að Kim sé ekki hraustur spruttu fyrr á þessu ári þegar mynd­skeið í rík­is­sjón­varpi lands­ins sýndi leið­togan orð­inn mun þyngri og haltra, eitt­hvað sem var ekki vanda­mál þegar hann tók við emb­ætt­inu af föður sínum í des­em­ber 2011. Hann er tal­inn þjást af gigt vegna stór­reyk­inga og dálætis á ostum en fjar­vera hans á þing­fund­inum um dag­inn varð til þess að yfir­völd í Norður-Kóreu ræddu opin­ber­lega um heilsu leið­tog­ans. Slíkt er mjög óvana­legt í flokks­ræð­inu á Kóreu­skaga.

Leið­tog­inn, sem orð­inn er 31 árs, var þá sagður þjást af „óþægi­legum lík­am­legum kvillum“ en hug­myndir um að hann þjá­ist af þvag­sýru­gigt voru ekki stað­festar.

Rík­is­sjón­varps­stöð Norður-Kóreu sýndi heim­ilda­mynd um svipað leyti þar sem Kim Jong-un sést heim­sækja verk­smiðju í höf­uð­borg­inni. Þulurinn heyr­ist þá lýsa „ríki­dæmi og vel­sæld“ sós­íal­íska kerf­is­ins sem afleið­ingu af fórnum leið­tog­ans sem „heldur áfram að lýsa leið­ina fyrir fólkið [...] þrátt fyrir að finna fyrir óþæg­indum“.

[caption id="attachment_8751" align="alignnone" width="768"] Kim Jong-un 31. ágúst 2014 þegar hann heim­sótti verk­smiðju ásamt fylgd­ar­teymi sem sést glósa hjá sér spak­mæli og brand­ara leið­tog­ans.[/caption]

Ekki á hann minnst í ríkisfréttum


Norður-Kórea ann­ast alla fjöl­miðlun í land­inu og stjórna þannig umræð­unni um öll heims­ins mál þar. Auk þess að flytja fréttir á kóresku eru þær birtar á vefnum á spænsku og ensku. Í einni slíkri frétt er sagt frá heim­komu norður-kóreska íþrótta­fólks­ins á sunnu­dag. Þar er því lýst hvernig hetjum þjóð­ar­innar var fangað inni­lega á flug­vell­inum í Pyongyang af helstu ráða­mönnum Verka­manna­flokks­ins og hers­ins.

Eftir að hafa hyllt myndir af Kim Il-sung og Kim Jong-il (afa og föður núver­andi leið­toga) óku íþrótta­menn­irnir svo í opnum vögnum niður aðal­strætið í höf­uð­borg­inni þar sem fólk hafði stillt sér upp tíu kíló­metra með­fram og veif­uðu blómum.

Hvergi er minnst á Kim Jong-un. Síðustu mynd­irnar af honum eru síðan 31. ágúst, þegar hann heim­sótti nýupp­gerða verk­smiðju.

Lítið vitað um Jong-un


Þrátt fyrir að Kim Jong-un hafi gengið í háskóla í Sviss og sé nú leið­togi ríkis í Asíu er lítið vitað um hann. Þegar hann tók við af föður sínum Kim Jong-il var til að mynda ekki vitað nákvæm­lega hvenær og hvaða ár Jong-un var fæddur. Margir von­uðu því, vegna skorts á upp­lýs­ingum þar á, að hann yrði umbótasinni í Norður-Kóreu og myndi tempra harð­neskj­una sem stjórn­völd sýna almenn­ingi í land­inu.

Vonir um slíkt hafa þó orðið að engu eftir að Jong-un hefur setið í tæp þrjú ár. Hung­ursneið og fátækt er enn mjög mikil í land­inu. Þá hefur sam­band Norður-Kóreu við nágranna­ríki versnað nokkuð en ríkið reyðir sig þó nokkuð á hjálp­ar­að­stoð frá öðrum löndum.

Vopna­fram­leiðsla Norður-Kóreu­manna er einn stærsti þyrn­ir­inn í augum þró­aðra ríkja í álf­unni, og handan Kyrra­hafs­ins, en kjarn­orku­til­raunum hefur verið áfram haldið í Norður-Kóreu eftir að Jong-un tók við valda­taumunum. Jafn­framt segj­ast yfir­völd í Norður-Kóreu vera langt komin með geim­ferða­á­ætlun sína en banda­ríska leyni­þjón­ustan segir það vera ofsögur. Það sé hins vegar áhyggju­efni að Norður-Kórea skuli halda áfram að rann­saka og prófa sig áfram með stærri eldlflaugar því á end­anum muni þeir geta smíðað flaugar sem náð geta til ann­arra heims­álfa.

Kim Jong-un nýtur án efa ekki jafn mik­illar hylli og faðir sinn og afi. Þeir voru báðir lengi sem leið­togar Norður-Kóreu, Jong-il var leið­togi í 17 ár en Il-sung í 46 ár. Á mynd­band­inu hér að neðan má sjá frétta­þul rík­is­sjón­varpss­ins minn­ast Kim Jong-il í lok árs 2011. Leið­toga­ástin virð­ist vera svo mikil að þul­ur­inn brotnar alger­lega niður og grætur meðan hún les.

http://www.youtube.com/watch?v=hRkp8d4R-Qs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár