Útgerðarmenn bíða spenntir eftir ákvörðun um makríl

Hlut­hafar í þeim sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem veitt hafa mak­ríl í íslenskri lög­sögu á und­an­förnum árum bíða nú spenntir eftir því hvort sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra kvóta­setji mak­ríl­inn var­an­lega. Ákvörðun um þetta gæti komið fram í vetur. Fram að þessu hefur mak­ríl­kvót­anum ein­ungis verið úthlutað til eins árs í senn - að vori fyrir kom­andi ver­tíð sem stendur venju­lega frá júní og fram í sept­em­ber. Þessi „skamm­tíma­út­hlutun“ hefur breyst nokkuð á síð­ustu árum. Að vísu hafa upp­sjáv­ar­skipin sem hafa mestu afla­reynsl­una alltaf fengið hlut­falls­lega mest en þó hefur hlut­deild smá­báta­flot­ans auk­ist nokkuð, sér­stak­lega jókst hún í ár. Í ár var mak­ríl­kvót­inn sem Ísland úthlut­aði sér tæp 168 þús tonn. Upp­sjáv­ar­skipin sem hafa mesta afla­reynslu fengu 69,8% af kvót­anum, frysti­tog­arar fengu 20,8%, ísfisk­skip fengu 5,4% og smá­bátar 4,1%.

Ekkert samkomulag í N-Atlantshafi


Þjóð­irnar sem veiða mak­ríl í N-Atl­ants­hafi hafa ekki getað komið sér saman um skipt­ingu á mak­ríl­kvót­anum. Það hefur leitt til þess að heild­ar­afl­inn hefur verið tals­vert umfram ráð­gjöf ICES. Á meðan enn er ósamið um mak­ríl­kvót­ann þykir mörgum eðli­legt að hann sé ekki settur var­an­lega inní kvóta­kerfið. Á hinn bóg­inn hefur afla­reynsla vegið þungt þegar nýjar teg­undir eru kvóta­settar innan fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins á Íslandi. Yfir­leitt hefur það verið gert án sér­staks end­ur­gjalds. Nýlegt dæmi er úthlutun í var­an­lega kerfið á blá­löngu­kvóta. Þar nutu útgerðir á Suður- og Vest­ur­landi þess að sú teg­und veidd­ist að mestu leyti úti fyrir Suður- og Vest­ur­landi fyrstu árin þótt útbreiðslan hafi auk­ist á síð­ari árum. Í því til­felli þurftu þær útgerðir sem fengu kvóta úthlut­aðan ekki að greiða neitt sér­stakt gjald heldur nutu afla­reynslu áranna á undan.

Makrílúthlutun


[table file="https://docs.google.com/spreadsheets/d/1fm7q_XSgaaBa1Aj8FBqJoJ3RiU1apL6Fskflcd6mx5s/export?format=csv"][/table]

Miklir fjár­hags­legir hags­munir eru í húfi þegar kemur að mak­rílnum. Tegundin er verð­mæt og má segja að stóru upp­sjáv­ar­fyr­ir­tækin sem hafa mestu afla­reynsl­una við veiðar á mak­ríl hafi hagn­ast mikið á síð­ustu árum með til­komu hans inn í lög­sög­una. Með til­komu mak­ríls­ins hefur verk­efna­staða upp­sjáv­ar­skipa auk­ist til muna. Mikil fjár­fest­ing hefur einnig átt sér stað innan fyr­ir­tækj­anna til að getað búið til sem mest verð­mæti úr afl­anum.

Ýmsar leiðir eru til staðar við úthlutun mak­ríl­skvót­ans hjá nágranna­þjóðum. Þannig hafa stjórn­völd í sumum nágranna­ríkjum okkar ákveðið að leggja á sér­stakt leigu­gjald á hvert tonn sem er veitt af mak­ríl. Það gerðu t.a.m. Græn­lend­ingar í ár og höfðu nokkuð miklar tekjur af því. Færeysk stjórn­völd hafa boðið út hluta kvót­ans í upp­hafi hverrar ver­tíðar til hæst­bjóð­anda og þannig tryggt sér tekjur af veið­unum.

Kvótinn gríðarlega verðmætur


Erfitt er að meta virði íslenska mak­ríl­kvót­ans. Líklegt er að hann sé ekki síður verð­mætur heldur en kvóti í öðrum teg­undum við Ísland. Í ár veiddu Íslend­ingar óvenju mikið en búast má við því að kvót­inn gæti minnkað á kom­andi árum. Það fer þó allt eftir ástandi stofns­ins og einnig hvort við náum samn­ingum við nágranna­þjóðir okkar um skipt­ingu hans. Ljóst er þó að virði kvót­ans hleypur á tugum millj­arða, sumir segja hann jafn­vel yfir 100 millj­arða virði. Það er því mikið í húfi. Besta nið­ur­staðan fyrir hlut­haf­ana í þeim sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem mesta reynsl­una hafa væri sú að þeir fengju ein­fald­lega mak­ríl­kvót­anum úthlutað end­ur­gjalds­laust byggt á afla­reynslu síð­ustu ára. Ef þetta yrði nið­ur­staðan kæmu hlut­hafar í fyr­ir­tækjum á borð við HB Granda, Síld­ar­vinnsl­unni, Ísfélagi Vest­manna­eyja, Samherja, Vinnslu­stöð­inni, Skinney-Þinga­ness, Eskju og Gjögur vel út.

Stór ákvörðun


Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þarf að skoða ýmsa þætti máls­ins gaum­gæfi­lega áður en hann tekur þá stóru ákvörðun hvernig eða þá hvort hann mun úthluta mak­ríl­kvót­anum var­an­lega . Hugs­an­lega vill hann skoða aðferðir Græn­lend­inga og Fær­ey­inga sem hafa lagt áherslu á að rík­is­sjóður fái hlut­deild í arð­inum sem skap­ast hefur með til­komu mak­ríls­ins. Kæmi til greina að fresta var­an­legri úthlutun og bjóða ein­fald­lega hluta kvót­ans upp til árs í senn líkt og Fær­ey­ingar gera? Eða jafn­vel bjóða upp kvót­ann til nokk­urra ára í senn?

Eitt er víst að spenn­andi verður að fylgj­ast með því hvaða leið sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra velur við úthlutun þess­arar verð­mætu teg­undar sem svo óvænt byrj­aði að veið­ast innan lög­sög­unnar fyrir til­tölu­lega fáum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár