Yahoo í samningaviðræðum um kaup á Snapchat

Vefris­inn Yahoo á í samn­inga­við­ræðum um kaup á hlut í Snapchat, að því er fram kom á vef­síðu New York Times.

Yahoo hagn­að­ist veru­lega á skrán­ingu Alibaba á markað en fyr­ir­tækið var meðal hlut­hafa þess þegar kom að skrán­ing­unni. Að því er fram kemur í frétt New York Times nemur verð­mæta­aukn­ingin um 6 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða um 800 millj­örðum króna.

Snapchat hefur notið mik­illa vin­sælda um allan heim síðan það kom á markað en með Appinu geta not­endur skipst á mynd­skeiðum og myndum sem síðan er eytt sjálf­krafa.

Um 100 millj­ónir manna um allan heim nota Snapchat en Facebook bauð 3 millj­arða dala í félagið í fyrra, en því var neitað. Um 70 pró­sent af virkum not­endum Snapchat eru konur.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem fram koma í umfjöllun Bloomberg er talið að Yahoo ætlar sér að kaupa hlut í Snapchat miðað þær for­sendur að félagið sé metið á 10 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 1.200 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár