Viðvörunarbjöllurnar komnar í gang í Noregi

Nokkur titr­ingur er hjá norskum stjórn­völdum vegna lækk­andi olíu­verðs síð­ustu vikna. Mikill upp­gangur hefur ein­kennt atvinnu­greinar sem tengj­ast olíu­iðn­að­inum í Noregi. Sér­stak­lega hefur verið mikið að ger­ast í Stavan­ger og nágrenni, í Roga­landi. Nú eru hins vegar blikur á lofti. Olíuverð hefur fallið hratt alla þessa viku og er nú komið í 92 USD/fatið úr rúmum 100 USD/farið fyrir bara rúm­lega mán­uði síðan.

Hlutabréf lækka í Noregi


Vegna þess hve mörg fyr­ir­tæki í Norsku Kaup­höll­inni (OSE) eru háð olíu­verði hefur úrvals­vísi­talan í OSE lækkað um 3% síð­ustu daga og um tæp 8% frá því í sumar. Þetta hefur valdið Haraldi V Nor­egs­kon­ungi áhyggjum og var­aði hann sam­landa sína í ræðu við setn­ingu Norska Stór­þings­ins í vik­unni um að Norðmenn gætu ekki vænst þess að olíu­iðn­að­ur­inn yrði jafn sterkur mótor í efna­hags­líf­inu og raunin hefur verið síð­ustu ár. Öystein Olsen seðla­banka­stjóri Noregs tók í sama streng í nýlegri ræðu og sagði að ef olíu­verð héldi áfram að falla myndi það þýða að fjár­fest­ingar við ný olíu­leit­ar­svæði myndu drag­ast saman og umsvif í olíu­tengdum greinum því minnka, að því er fram kom í Aften­posten. Raunar spáir Östein því að fjár­fest­ingar við olíu­leit í norskri lög­sögu muni drag­ast saman um 10% á árinu 2015 en gætu auk­ist aftur árið 2017.

Minnkandi eftirspurn frá Asíu og Evrópu


Samkvæmt grein­endum í Noregi eru helstu ástæður þess að olíu­verð hefur gefið eftir minni spurn eftir olíu frá Asíu og hæga­gangur í stóru hag­kerf­unum í Evrópu. Auk þess hefur fram­leiðsla í mörgum af helstu olíu­lönd­unum auk­ist að und­an­förnu. Hag­vöxtur í Evrópu er enn mjög lít­ill og lækk­aði Mario Draghi Seðla­banka­stjóri evr­ópska seðla­bank­ans stýri­vexti í 0,05% nýlega til þess að blása lífi í efna­hag land­anna. Nokkur óvissa er um þróun olíu­verðs á næstu mán­uðum. Árs­tíð­ar­bundin sveifla vegna vetr­ar­kulda í Evrópu og Banda­ríkj­unum getur haft áhrif til hækk­unar og auk þess er óvissa um hvernig ráða­menn í Sádí-Arabíu muni bregð­ast við lækk­andi olíu­verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár