Áhorf á fréttir RÚV minnkað um fimmtung frá 2008

Um fimmt­ungi færri horfðu á kvöld­fréttir RÚV að með­al­tali í lok ágúst og þorra sept­em­ber­mán­aðar 2014 en gerðu það í sept­em­ber 2008. Þetta er hægt að sjá út úr fjöl­miðla­mæl­ingum Capacent sem aðgengi­legar eru á vefnum. Um er að ræða hlut­fall þeirra Íslend­inga sem horfðu á með­alm­ín­útu af frétta­tíma RÚV.

Í sept­em­ber 2008 horfðu að með­al­tali 27,8 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 12-80 ára á með­alm­ín­útu af fréttir RÚV í vikum 36-39. Í ár horfðu að með­al­tali 22,2 pró­sent sama hóps á kvöldréttir RÚV í vikum 35-38, en tíma­bilið nær frá lokum ágúst og fram til 21. sept­em­ber. Á því tíma­bili féll einn frétta­tími niður vegna lands­leiks Íslands og Tyrk­lands í knatt­spyrnu og er tekið til­lit til þess í útreikn­ingum Kjarnans. Því horfa um 20 pró­sent færri á með­alm­ín­útu af fréttum RÚV nú en gerðu það á svip­uðum tíma árið 2008. Ef horft er til upp­safn­aðs áhorf er hlut­falls­leg fækkun enn meiri, eða 27,4 pró­sent.

Forskotið minnkar verulega


Stöð 2 hefur tek­ist betur að halda á áhorf­endum sem horfa á á með­alm­ín­útu af frétta­tíma stöðv­ar­innar. Þeim hefur fækkað um fjögur pró­sent frá 2008. Í sept­em­ber það ár horfðu 21,9 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 12-80 ára á frétta­tíma Stöðvar 2 en í viku 35-38 í ár, sem nær frá lokum ágúst og fram til 21. sept­em­ber, horfðu 21 pró­sent sama hóps á hann.

Þrátt fyrir að hafa tapað áhorfi hefur Frétta­stofa Stöðvar 2 því saxað mjög á for­skot Frétta­stofu RÚV á síð­ustu sex árum. Árið 2008 horfðu 21 pró­sent fleiri á með­alm­ín­útu af fréttum RÚV en Stöðvar 2 að með­al­tali á við­mið­un­ar­tíma­bil­inu. Árið 2014 er mun­ur­inn ein­ungis 5,4 pró­sent. Í viku 38 í ár,frá 15-21. sept­em­ber, horfðu fleiri á fréttir Stöðvar 2 í ald­urs­hópnum 12-80 ára en á frétta­tíma RÚV. Alls horfðu 19,4 pró­sent hóps­ins á með­alm­ín­útu af frétta­tíma Stöðvar 2 en 19 pró­sent á fréttir í rík­is­sjón­varp­inu.

Uppsafnað áhorf á fréttir Stöðvar 2 hefur aukist


Ef miðað er við upp­safnað áhorf á frétta­tím­ann – hlut­fall þeirra sem horfðu í að minnsta kosti fimm mín­útur sam­fleytt á hann – er fækkun þeirra sem horfðu á fréttir RÚV í sama ald­urs­hóp enn meiri, eða 27,4 pró­sent.

Upp­safnað áhorf á fréttir Stöðvar 2 er hins vegar meira nú en það var á við­mið­un­ar­tíma­bil­inu 2008. Árið 2014 er það 25,9 pró­sent en var 25,6 pró­sent að með­al­tali í sept­em­ber 2008. Upp­safnað áhorf hefur því auk­ist um 1,2 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár