Ný lög skila vaxtagreiðslum aftur til ríkissjóðs

Til stendur að leggja fram frum­varp um að lög­festa nýja arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­banka Íslands innan tveggja til þriggja vikna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Verði frum­varpið að lögum mun Seðla­bank­inn borga allan hagnað yfir ákveðið lág­marks eigið fé til rík­is­sjóðs sem arð­greiðslu. Ekki hefur feng­ist upp­gefið hvert þetta lág­marks eigið fé verður utan þess að það verður reiknað út eftir „ákveð­inni aðferð­ar­fræði“.

Kjarninn greindi nýverið frá því að skulda­bréf sem ríkið skuldar Seðla­bank­anum hafi verið lækkað um 26 millj­arða króna,í 145 millj­arða króna, án þess að greiðsla hefði borist fyrir. Sú aðgerð gerði það að verkum að vaxta­greiðslur rík­is­ins vegna skulda­bréfs­ins verða 8,1 millj­arður króna á næsta ári. Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2015 segir að þessi nýja arð­greiðslu­regla geri „ráð fyrir því að auknar vaxta­tekjur vegna skulda­bréfs­ins skili sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu þar sem nýja reglan gerir ráð fyrir að allur hagn­aður bank­ans verði greiddur til rík­is­sjóðs sé eigið fé bank­ans yfir skil­greindu við­miði“.

Með nýju arð­greiðslu­regl­unni gætu því vext­irnir sem ríkið greiðir af skuld sinni við Seðla­bank­ann skila sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu í lok hvers árs.

Mikil breyting frá því sem nú er


Um tölu­vert mikla breyt­ingu er að ræða. Í dag eru lögin þannig að þriðj­ungur alls hagn­aðar Seðla­bank­ans rennur í rík­is­sjóð. Með nýju arð­greiðslu­regl­unni mun allur hagn­aður Seðla­bank­ans yfir hið ótil­kynnta eig­in­fjársvið­mið renna til rík­is­sjóðs. Fyrir utan vext­ina sem ríkið greiðir, og fær svo til baka, þá gæti þessi hagn­aður verið tölu­vert mik­ill, m.a. vegna sölu á eignum sem Seðla­bank­inn eign­að­ist í hrun­inu. Þær eru í dag vistaðar í dótt­ur­fé­lagi bank­ans, Eign­ar­safni Seðla­banka Íslands.

Ef Seðla­bank­inn á hins­vegar slæmt ár, og eigið fé hans fer niður fyrir hið ákveðna við­mið, þá mun hagn­aður bank­ans fyrst fara í að ná því aftur upp fyrir áður en arður er greiddur til rík­is­sjóðs. Til­gang­ur­inn er að koma á betri reglu sem bregst fyrr við því hvernig eigið fé bygg­ist upp. Samhliða á Seðla­bank­inn að fá aðgang að meira eigin fé frá rík­is­sjóði, ef hann þarf á því að halda, í gegnum hluta­fjár- eða stofn­fjár­lof­orð sem yrði lög­bundið. Bankinn gæti dregið á þetta fé án aðkomu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins eða Alþingis. Heim­ildir Kjarnans herma að til standi að lögin muni gilda frá og með næstu ára­mótum, verði þau sam­þykkt á Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár