Angry Birds tekst ekki lengur að komast á loft

Finnski leikja­fram­leið­and­inn Rovio Enterta­in­ment, sem fram­leiðir tölvu­leik­inn Angry Birds, á í vand­ræðum með að þróa leik­inn áfram og hefur fyr­ir­tæk­inu ekki tek­ist að halda í við áætl­anir um mik­inn vöxt. Af þeim sökum verður starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins fækkað um 130, en þeir voru allir við störf í Finn­landi.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Mikael Hed, birti fyrr í dag á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Ekki er langt síðan að Angry Birds leik­ur­inn var fyrir framan nefið millj­ónum manna um allan heims alla daga, þar sem ungir sem aldnir nutu þess að skjóta reiðu fugl­unum á loft við ýmsar krefj­andi aðstæður.

Um tíma var App frá Angry Birds það lang­sam­lega vin­sælasta í heim­inum, bæði fyrir Apple og Android síma. Það er til marks um hversu hratt málin þró­ast í leikja­heim­inum fyrir snjall­síma og spjald­tölvur að nokkuð hratt hefur fjarað undan vin­sældum tölvu­leikj­anna undir merkjum Angry Birds. Á sama tíma hefur sala á leik­föngum auk­ist nokkuð.

Hed mun hætta störfum í jan­úar og nýr for­stjóri taka við stjórn­ar­taumunum, Finninn Pekka Rantala, fyrr­ver­andi mark­aðs­stjóri Nokia.

Heild­ar­tekjur Rovio á árinu 2013 námu 156 millj­ónum evra, eða sem nemur 23,7 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár