Sóttu hlutafé í vasa Snoop Dogg og Jared Leto

Aðstand­endur sam­fé­lags­mið­ils­ins Reddit hafa sótt sér 50 millj­ónir Banda­ríkja­dala í nýtt hlutafé að und­an­förnu, eða sem nemur um sex millj­örðum króna. Samkvæmt fréttum frétta­mið­ils­ins Quartz í gær er heild­ar­virði hluta­fjár metið á 500 millj­ónir Banda­ríkjdala í þessum við­skiptum, eða sem nemur um 60 millj­örðum króna. Á meðal þeirra sem keyptu hlut í Reddit voru rapp­ar­inn Snoop Dogg og leik­ar­inn og tón­list­ar­mað­ur­inn Jared Leto. Fjár­fest­arnir Marc Andreessen og Peter Thiel keyptu einnig hlut.

Andreessen er þekktur nýsköp­un­ar­fjár­festir og kom meðal ann­ars að stofnun Mosaic og Netscape, en hann rekur nú fjár­fest­inga­sjóð á sviði frum­kvöðla­starf­semi.

Thiel, sem er fæddur í Þýska­landi, hefur einnig víð­tæka reynslu af nýsköp­un­ar­fjár­fest­ingum. Hann var á meðal stofn­enda Pay Pal ásamt Elon Musk, eig­anda Tesla Motors og SpaceX.

Upp­haf­lega hug­myndin að baki Reddit var að gefa les­endum mögu­leika á því að fylgj­ast með því sem væri nýj­ast og áhuga­verð­ast á vefnum. Mið­ill­inn er gríð­ar­lega vin­sæll í Banda­ríkj­unum og þykir hafa marg­vís­lega vaxtar- og tekju­mögu­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár