Topp 5: Um 100 milljónir Kínverja með sykursýki

Syk­ur­sýki er vax­andi sjúk­dómur en aukn­ing sjúk­dóms­ins meðal íbúa í Kína á und­an­förnum árum hefur verið ógn­væn­lega hröð. Í skýrslu Alþjóð­legu syku­sýkis­sam­tak­anna (International Diabetes Federation) kemur fram að 98,4 millj­ónir Kínverja séu nú með syk­ur­sýki en heildar­í­búa­fjöldi í Kína er um 1,4 millj­arðar. Árið 2015 er ráð fyrir því gert að 142,7 millj­ónir Kínverja muni verða með syk­ur­sýki. Í ljósi þess að Kín­verjum er ekki að fjölga, líkt og flestum öðrum þjóðum, þá er vöxtur syk­ur­sýki í land­inu gríð­ar­lega mik­ill. Gert er ráð fyrir að Kín­verjar verði svipað margir árið 2035 og þeir eru nú eða jafn­vel lítið eitt færri, sam­kvæmt mann­fjölda­spá Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Sykursýki er sjúk­dómur, sem gerir það að verkum að syk­ur­magnið (þrúgu­sykur/glúkósi) í blóð­inu er meira en venju­lega, sam­kvæmt hefð­bund­inni ein­faldri skil­grein­ingu. Rann­sóknir á syk­ur­sýki hafa sýnt mikil tengsl milli lífstíls ein­stak­linga og syk­ur­sýki. Því óholl­ari lífstíll, það er lítil hreyf­ing og óhollt óhóf­legt matar­æði, því meiri líkur eru á syk­ur­sýki.

Sé horft til þeirra fimm þjóða sem eru með flesta syk­ur­sýkis­sjúk­linga, þá koma Ind­verjar næst á eftir Kína með 65,1 milljón syk­ur­sjúkra. Eins og búast má við eru fjöl­menn­ustu ríki heims­ins á lista þeirra 5 þjóða sem eru með flesta syk­ur­sjúkra, en spáin fyrir 2035 gerir ráð fyrir tölu­vert mik­illi fjölgun þeirra sem grein­ast með syk­ur­sýki.

Topp 5 listi yfir íbúa þjóða sem þjást af syk­ur­sýkir, og hvernig staðan mun líta út árið 2035, sam­kvæmt spá, má sjá hér að neðan.

  1. Kína (1,4 millj­arðar íbúa) - 98,4 millj­ónir syk­ur­sjúkra - 142,7 millj­ónir syk­ur­sjúkra árið 2035.

  2. Indland (1,2 millj­arðar íbúa) - 65,1 millj­ónir syk­ur­sjúkra - 109 millj­ónir 2035.

  3. Banda­ríkin (330 millj­ónir íbúa) - 24,4 millj­ónir syk­ur­sjúkra - 29,7 millj­ónir 2035.

  4. Brasilía (203 millj­ónir íbúa) - 11,9 millj­ónir syk­ur­sjúkra - 19,2 millj­ónir 2035.

  5. Rússland (146 millj­ónir íbúa) - 10,9 millj­ónir syk­ur­sjúkra - 11,2 millj­ónir 2035.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár